Í hinni opinberu áróðursmaskínu Pútíns er talað um góðan gang í sókn Rússa og að mikill fjöldi Rússa gangi til liðs við herinn af fúsum og frjálsum vilja. En því er haldið vandlega leyndu að tugir þúsunda hermanna hafa gerst liðhlaupar og eru í felum og gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir að yfirvöld finni þá.
Þetta er vandamál, sem hefur bara aukist, í takt við að stríðið, sem Pútín taldi að myndi aðeins vara í nokkra daga eða vikur, hefur dregist á langinn.
Á undanförnum mánuðum hefur sú von farið vaxandi meðal rússnesku þjóðarinnar að vopnahlé geti fljótlega orðið raunin. En árangurslausar þreifingar að undanförnu hafa að mestu leyti gert út af við þessar vonir.
Sögur um mikinn fjölda liðhlaupa hafa lengi grasserað á rússneskum samfélagsmiðlum og í útlægum rússneskum fjölmiðlum. Síðasta haust skýrði miðillinn Vazjnye Istorii frá rússneskum herdeildum sem tæplega 20% af hermönnunum höfðu gerst liðhlaupar.
Á rússnesku herslangi eru liðhlauparnir kallaðir „síðustu 500“ („síðustu 200“ er þeir föllnu og „síðustu 300“ eru þeir særðu). Í „síðustu 500“ hópnum eru að mati Vazjnyje Istorii rúmlega 50.000 menn. Byggir miðillinn þetta á tölum sem hann hefur kafað ofan í og greint.