Ný rannsókn sýnir hver ástæðan er fyrir langsamlega flestum krókódílaárásum í Flórída. Þær eru ekki krókódílunum sjálfum að kenna.
Rannsóknin var unnin af vísindamönnum við Flódíaháskóla og Centre College í Kentucky fylki. Voru niðurstöðurnar birtar um miðjan síðasta mánuð.
Frá árinu 1948 hafa verið skráðar nærri 500 krókódílaárásir í Flórída. Í þeim létust samanlagt 27 einstaklingar og 339 hlutu mjög alvarleg meiðsli af.
Ástæða flestra árásanna er hins vegar ekki árásargirni krókódílanna heldur hegðun þeirra sem bitnir voru.
„Áhættusöm hegðun manna er ástæðan, ekki árásargirni krókódílanna,“ segir í rannsókninni. Flest slysin gerðust í vatni, yfirleitt þegar menn voru að synda of nálægt krókódílum.
Að sögn vísindamannanna eru krókódílar ekki að leitast eftir átökum við menn. Árásirnar eru ósjálfráðar, það er að krókódílarnir bregðast við hreyfingum í vatninu.
„Það sem læra má af þessari rannsókn er að það er hægt að komast hjá mörgum bitum ef fólk er meðvitað um umhverfi sitt og haldi áhættuhegðun í lágmarki,“ sagði Frank Mazzotti, vistfræðingur.