fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
Fréttir

Fór í tannaðgerð í Tyrklandi og sér eftir því – „Mér líður eins og allur heimurinn sé að glápa á mig“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 29. maí 2025 20:30

Leanne lýsir hryllingnum á TikTok. Skjáskot/TikTok

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bresk kona lýsir hræðilegum sársauka og vandamálum sem fylgdu tannaðgerð í Tyrklandi. Hún lét taka úr sér allar tennurnar og setja tannplanta en ákvað að sleppa deyfingu vegna kostnaðar. Tímabundnir plantar brotnuðu úr og ári seinna er sýkingin og bólgan of mikil til að laga mistökin.

Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu en konan, sem heitir Leanne og er plötusnúður frá bænum Telford, hafði sagt frá og sýnt myndir af aðgerðinni á samfélagsmiðlum.

Leanne var með skakkt bros. Hún hafði látið setja skinnur yfir tennurnar árið 2009 þegar hún bjó í Tyrklandi en vissi að slík lausn myndi ekki duga að eilífu. Skinnurnar byrjuðu að detta út úr henni og límdi hún þær aftur í með naglalími þar til hún hefði efni á varanlegri lausn.

Sú stund kom fyrir ári síðan, í maí árið 2024, þegar Leanne ákvað að fljúgja til Tyrklands til að láta rífa úr sér tennurnar og setja upp tannplanta. Hún segist hafa skoðað þessa lausn í hálft ár og fengið sífelldar auglýsingar um ódýrar tannviðgerðir erlendis. Þetta var hins vegar ákvörðun sem hún átti eftir að sjá eftir.

Ekki svæfð

Þann 8. maí árið 2024 fór hún í skoðun hjá tannlæknastofu sem kallast EC Clinic. Hún vissi að það myndi þurfa að rífa tennurnar úr og setja upp skrúfur sem plantarnir yrðu svo settir ár. En eftir röntgenskoðun á kjálkanum var henni hins vegar sagt að aðgerðin yrði miklu flóknari en hún hélt.

„Ég er mjög hrædd, á morgun byrja þeir að rífa úr mér allar tennurnar og sauma. Síðan held ég að þeir setji skrúfurnar í,“ sagði hún í einu myndbandi á TikTok.

Upphaflega hélt hún að hún gæti gengið inn og út, hamingjusamlega brosandi með nýjar tennur. Var henni hins vegar sagt að hún myndi þurfa fleiri skrúfur og aðgerðir til þess að styrkja kjálkabeinið.

Um er að ræða aðgerð sem flestir þurfa svæfingu fyrir. Hana ákvað Leanne hins vegar að afþakka þar sem svæfingin kostaði 400 pund, eða tæplega 70 þúsund krónur. Var hún því vakandi og með fullri meðvitund allan tímann.

Hún fékk 25 deyfisprautur, þar á meðal eina í mjöðmina, en hún segir að sársaukinn hefði engu að síður verið óbærilegur. Sem og óþægindin sem þessu fylgdi. „Mér leið eins og ég væri að kafna með suguna og vatnið upp í mér,“ sagði hún.

Afmynduð í andliti

Eftir fjögurra tíma aðgerð var búið að rífa tennurnar úr og setja skrúfur í staðinn. Hún fékk tímabundna planta og var sátt þegar hún gekk út, þrátt fyrir að vera marin og aum.

En  hamingjan breyttist fljótlega í harm því að eftir einn mánuð með tímabundnu tannplöntunum byrjaði hún að lenda í vandræðum með þá. Fyrst bólgnaði hún út um nefið og varð afmynduð í andlitinu. Síðan byrjuðu plantarnir að detta út úr henni og skrúfurnar stóðu berar út í loftið. Að lokum brotnaði ein skrúfan úr. Líkaminn var að hafna þessum aðskotahlutum.

„Ég fékk hryllilegan hausverk og blóðnasir sem hættu ekki,“ sagði Leanne sem greindi frá því að hún væri almennt blóðlítil manneskja og ætti erfitt með að sigrast á sýkingum. „Ég er með sár innan í nefinu sem mynda hrúður og breyta nefinu. Ég er öll í keng og finn stanslaust fyrir sársauka. Mér líður eins og allur heimurinn sé að glápa á mig. Ég er svo ljót að ég gæti grátið. Tannlæknirinn minn í Bretlandi vill ekki skoða mig. Tímabundnu plantarnir eru brotnir. Ég hata það sem ég er búin að gera og ég get ekkert gert í því,“ sagði hún í færslu.

Eitt ár á sýklalyfjum

Tímabundnu plantarnir áttu að duga í fjóra eða fimm mánuði og þá átti hún að fá varanlega, það er þegar bólgan væri hjöðnuð.

Ári seinna er hún enn þá ekki búin að fá varanlega planta. Hún hefur verið á sýklalyfjum stanslaust í heilt ár. Leanne er nú að bíða eftir að sýkingin loksins hörfi og bólgurnar hjaðni til að hún geti farið í aðra aðgerð. Hún varar samlanda sína við að falla fyrir gylliboðum erlendis, það sé öruggara að láta gera aðgerðina heima fyrir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Þeir eru kallaðir „síðustu 500“ og eru vaxandi vandamál fyrir stríðsrekstur Pútíns

Þeir eru kallaðir „síðustu 500“ og eru vaxandi vandamál fyrir stríðsrekstur Pútíns
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Brúðkaupsmynd versta barnaníðings sögunnar – Hávært ákall er um að eiginkonan svari einnig til saka

Brúðkaupsmynd versta barnaníðings sögunnar – Hávært ákall er um að eiginkonan svari einnig til saka