Fyrrverandi blaðakona var handtekin í Grikklandi þegar upp komst um fjársvik hennar í ferðaþjónustu. Konan sveik meðal annars fé út úr hópi af fötluðum einstaklingum sem vildu ferðast til Íslands.
Konan var handtekin á hóteli í miðborg Aþenu, höfuðborgar Grikklands, þar sem hún hafði verið í felum eftir að upp komst um fjársvik hennar. Samkvæmt gríska miðlinum Protohema var ætlun hennar að flýja úr landi.
Hún hafði starfað sem blaðakona en titlaði sig nú sem almannatengil og fararstjóra hjá ferðaþjónustufyrirtæki. Samkvæmt grísku lögreglunni var hún gómuð eftir að upp komst um svik tengt úrslitakeppninni í körfuboltakeppninni Euroleague, sem fram fóru í Abú Dhabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um liðna helgi.
Alls er konan grunuð um að hafa svindlað á 50 einstaklingum undanfarið ár. Það er að hún hafi svikið alls 160 þúsund evrur, eða rúmar 23 milljónir króna, út úr fólkinu. Þar á meðal er hópur af fötluðum einstaklingum sem konan þóttist vera að selja ferð til Íslands.
Konan sagðist geta boðið fólki ferðir á afsláttarkjörum. Það er að hún gæti fengið lækkað verð á flugferðum og hótelgistingum en í raun og veru voru þær aldrei pantaðar.
Fimm fatlaðir einstaklingar greiddu konunni fyrir fram fyrir ferð til Íslands þar sem hún lofaði að hugað yrði sérstaklega að þörfum þeirra. En fórnarlömbin sem um ræðir er fólk sem er í hjólastólum. Borguðu þau fyrir flugmiða, hótel og bílaleigubíl sem aldrei var pantað. Það eina sem þau fengu voru flugmiðarnir til Íslands þar sem þau urðu strandaglópar.
„Hún sveik fé út úr mér og hópnum mínum sem fórum í ferð til Íslands, hún lofaði stuðningi fyrir fatlaða,“ segir eitt fórnarlambið. „Það var enginn stuðningur og við vorum í miklum vanda. Við vorum ekki með neitt hótel, enga miða til baka og engan samgöngumáta jafn vel þó að við hefðum greitt allt fyrir fram.“
Konan plataði einnig hópa sem ætluðu að fara til eyjarinnar Lemnos í Grikklandi og til Maldiví eyja á Indlandshafi.
Að sögn Protohema notaði konan þá aðferð að vinna sér inn traust viðskiptavina sinna. Það er fyrst skipulagði hún ódýrari ferðir þar sem allt gekk eftir. Þegar sömu viðskiptavinir pöntuðu dýrari ferðir þá stakk hún fénu í vasann og lét sig hverfa.
„Þetta var mjög freistandi,“ sagði eitt fórnarlambið um ferðirnar sem hún bauð upp á.
Meðal annars bauð hún upp á 11 daga ferð til Íslands, með flugi, bílaleigubíl og gistingu, á 1.600 evrur á mann. Það er 231 þúsund krónur. En verð hjá öðrum ferðaskrifstofum er í kringum 3.500 evrur fyrir sambærilega ferð, það er 506 þúsund krónur.