fbpx
Miðvikudagur 28.maí 2025
Fréttir

Ökumaður á Akureyri mældist með alkóhól í útblæstri eftir að hafa borðað súrdeigsbrauð – „Ég hef aldrei drukkið“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 27. maí 2025 17:30

Ekki maula súrdeigsbrauð rétt áður en þú blæst í áfengismæli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur karlmaður um fertugt var stoppaður af lögreglu á Akureyri og mældist með alkóhól í útblæstri þrátt fyrir að hafa aldrei drukkið deigan dropa. Ástæðan var súrdeigsbrauð sem hann hafði nýlega gætt sér á.

„Ég hef aldrei drukkið,“ segir maðurinn í samtali við DV eftir að hann var stöðvaður af lögreglunni nálægt Akureyri í gær.

Maðurinn var stöðvaður á Hörgárbraut, á þjóðvegi 1, norðan við Akureyri í hádeginu. Vanalega er þetta svæði þar sem hámarkshraðinn er 70 km/klst en hann hafði verið lækkaður vegna framkvæmda.

Heimtaði blóðprufu

Maðurinn var að maula á hádegismatnum sínum í bílnum, það er skinkuhyrnu úr súrdeigi. Bað lögreglumaðurinn hann að blása í mæli með túðu framan á og viti menn, það mældist lítils háttar áfengi í útblæstrinum. Þá náði lögreglumaðurinn í annan mæli og aftur mældist alkóhól, það er 0,14.

„Ég heimtaði blóðprufu en hann vildi ekki gera það,“ segir maðurinn og jafn framt að hann hefði orðið mjög hneykslaður á þessu. „Sagði að þetta væri of lítil mæling fyrir fyrir blóðprufu. Hann sagðist ekki ætla að handtaka mig en gæti ekki leyft mér að keyra. Hann sagðist geta keyrt bílinn fyrir mig aðeins lengra en síðan þyrfti ég að bíða.“

Niðurstaðan breyttist við skolun

Þetta tók hann ekki í mál. Það er að hann væri spyrtur við áfengisneyslu. Mundi hann eftir að hafa heyrt að áfengi myndaðist við súrdeigsgerð og bað lögreglumanninn að fá að skola á sér munninn og blása aftur. Lögreglumaðurinn samþykkti það og viti menn, mælirinn sýndi þá 0,0.

„Hann varð gremjulegur og sagðist eiga bágt með að trúa þessari sögu um súrdeigið,“ segir maðurinn aðspurður um viðbrögð lögreglunnar. En hann fékk að halda áfram að keyra.

Segist hann vilja láta fólk vita af þessu, bæði ökumenn og lögreglu. Það er að súrdeigið geti haft þessi áhrif.

Gerjaðar sykrur

Súrdeig inniheldur mjólkursýrugerla og gergró sem gerja sykrur og breyta þeim í alkóhól og kolsýru. Alkóhólvökvinn getur orðið allt að 18 prósent að styrkleika en gufar að langmestu leyti upp við bökun. Eftir verður afar lítið, en þó eitthvað, áfengismagn í deiginu.

Maðurinn sem lenti í þessu óskemmtilega atviki fyrir norðan bendir einnig á að í téðri skinkuhyrnu sem hann var að gæða sér á sé einnig maltað hveiti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Sæþór nýr leiðtogi Sósíalistaflokksins segir reynt að rústa mannorði hans með fölsuðu kynferðisspjalli við ólögráða unglingspilt

Sæþór nýr leiðtogi Sósíalistaflokksins segir reynt að rústa mannorði hans með fölsuðu kynferðisspjalli við ólögráða unglingspilt
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sakar bæjarstjóra um að kasta íþróttafélögum fyrir rútuna til að bjarga andliti – „Ekki er það nú stórmannlega gert“

Sakar bæjarstjóra um að kasta íþróttafélögum fyrir rútuna til að bjarga andliti – „Ekki er það nú stórmannlega gert“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Brynja varpar ljósi á ótrúleg svik: „Stuttu seinna fóru að renna tvær grímur á Sigurð“

Brynja varpar ljósi á ótrúleg svik: „Stuttu seinna fóru að renna tvær grímur á Sigurð“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Flugvél nauðlenti á Suðurlandsvegi í gærkvöldi

Flugvél nauðlenti á Suðurlandsvegi í gærkvöldi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Segja að samningaviðræður Trump við Pútín þýði að Evrópa þurfi að undirbúa sig undir stríð

Segja að samningaviðræður Trump við Pútín þýði að Evrópa þurfi að undirbúa sig undir stríð
Fréttir
Í gær

Rottur á ferli í Grafarvogi – Hafa sést klifra upp veggi fjölbýlishúsa

Rottur á ferli í Grafarvogi – Hafa sést klifra upp veggi fjölbýlishúsa
Fréttir
Í gær

Sindri undrast hörku yfirvalda í garð Oscars – „Þá er þetta bara skrýtið“

Sindri undrast hörku yfirvalda í garð Oscars – „Þá er þetta bara skrýtið“