fbpx
Fimmtudagur 11.desember 2025
Fréttir

Gítar Guðmundar er fundinn – Þakklátur þeim sem lýstu eftir honum

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 6. október 2025 15:30

Guðmundur hefur endurheimt gítarinn. Mynd/Guðmundur Edgarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verðmætur gítar sem stolið var af heimili málmenntafræðingsins Guðmundar Edgarssonar er kominn í leitirnar. Guðmundur er þakklátur þeim sem lýstu eftir gítarnum og brýnir fyrir fólki að læsa öllum hurðum og gluggum áður en gengið er til náða eða farið af heimilinu.

DV greindi frá því í morgun að Martin gítar, sem er metinn á hálfa milljón króna, hafi verið stolið af heimili Guðmundar í Grafarvoginum aðfaranótt fimmtudags. Mætti hann þjófnum sem hljóp burt með gítarinn og iPad.

Lögreglan fann þýfi úr öðrum innbrotum í poka í ruslageymslu húsnæðisins en ekki eigur Guðmundar. Bað hann fólk um að fylgjast með hvort hann myndi dúkka upp á sölusíðum.

Skilinn eftir í geymslu

Nú hefur Guðmundur greint frá því að gítarinn sé fundinn og er hann himinlifandi yfir því.

Sjá einnig:

Guðmundur saknar verðmæts gítars sem stolið var af heimilinu – „Fór fram og stend þá andspænis þjófnum“

„Lögreglan hafði samband við mig um hádegið og tjáði mér að Martin gítarinn, sem var stolinn frá mér í innbroti s.l. fimmtudagsnótt, væri fundinn,“ segir hann í færslu. „Hann hafði verið skilinn eftir í geymslu eftir annað innbrot í Grafarvoginum. Í kjölfar birtingar DV um þjófnaðinn á gítarnum kom í ljós að um sama gítar væri að ræða.“

Þjófurinn ófundinn

Hins vegar sé þjófurinn sem Guðmundur sá hlaupa í burtu enn þá ófundinn.

„Ég er því í ævarandi skuld við hinn fróma miðil, DV, fyrir að hafa átt lykilþátt í að endurheimta dýrgripinn. Einnig þakka ég öllum þeim fjölmörgu vinum mínum á Facebook fyrir að deila pósti mínum um gítarstuldinn,“ segir hann og minnir fólk á að hafa varann á. „Að lokum vill ég aftur brýna fyrir ykkur öllum að læsa kyrfilega öllum hurðum og gluggum þegar heimilið er yfirgefið eða gengið til náða.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sauð upp úr á heimili sambýliskvenna í Kópavogi

Sauð upp úr á heimili sambýliskvenna í Kópavogi
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Skotin flugu eftir færslu Sigmars: „Enginn brjálaður hérna, nema kannski forseti þingsins“

Skotin flugu eftir færslu Sigmars: „Enginn brjálaður hérna, nema kannski forseti þingsins“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Íslensk börn getin með sæði úr dönskum gjafa með lífshættulega genastökkbreytingu

Íslensk börn getin með sæði úr dönskum gjafa með lífshættulega genastökkbreytingu
Fréttir
Í gær

Dauðsfallið á Kársnesi: Maðurinn látinn laus úr gæsluvarðhaldi

Dauðsfallið á Kársnesi: Maðurinn látinn laus úr gæsluvarðhaldi
Fréttir
Í gær

Segir þetta stærsta réttlætismál næstu ára – „Til konunnar sem þurfti að gefa barnið sitt í burtu“

Segir þetta stærsta réttlætismál næstu ára – „Til konunnar sem þurfti að gefa barnið sitt í burtu“
Fréttir
Í gær

Styrktarátak Nettó skilar 5,5 milljónum króna til Ljóssins

Styrktarátak Nettó skilar 5,5 milljónum króna til Ljóssins
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi í veikindaleyfi – Þarf að gangast undir hjartaaðgerð

Guðmundur Ingi í veikindaleyfi – Þarf að gangast undir hjartaaðgerð