fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 29. júní 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blokkin að Írabakka 2-16 er öll í eigu Félagsbústaða. Mikið hefur verið kvartað undan ónæði í einum stigagangi blokkarinnar og samkvæmt heimildum DV er ónæðið að mestu frá einum íbúa, konu, sem og næturgestum hennar.

DV greindi á föstudag frá áhyggjum föður en 9 ára dóttir hans dvelst í húsinu hjá barnsmóður hans aðra hvora viku. Fyrir utan gífurlegt ónæði af hálfu umrædds íbúa greindi maðurinn frá því að bakki með sprautunálum væri geymdur á lóðinni, skammt frá barnaleikvelli.

Sjá einnig: Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli

„Þarna er dallur undir sprautunálar sem hefur verið settur upp í fimm metra fjarlægð frá barnaleikvelli. Hér eru óvitar og litlir krakkar að leika sér og ekki ólíklegt að þau geti séð þennan dall, sem er merktur Geislavörnum ríkisins, og tekið hann eða opnað hann. Nálægðin er rosalega óeðlileg, þetta er alvarlegt,“ sagði maðurinn. Hann lýsti gífurlegu ónæði vegna óreglu konunnar og sagði að stöðugar kvartanir til Félagsbústaða hefðu engu skilað.

Ágengt betl, öskur og brothljóð

Kona sem fluttist úr stigaganginum í febrúar segist hafa búið við nánast stanslaust ónæði af hálfu þessa íbúa í um sjö ár. Sjálf bjó hún í þarna í tíu ár.

„Já, það var ónæði meira og minna allan tímann. Þetta byrjaði mjög sakleysislega, konan átti greinilega í erfiðleikum og var með einhvern sjúkdóm. Hún var alltaf að koma til mín til að fá eitthvað lánað. Ég bauð henni kannski gos og þá spurði hún: Áttu nokkuð að borða? Svo varð þetta stöðugt meira og heimtufrekara. Hún fór að biðja um sérstaka orkudrykki og vildi fá allt gefins. Samt var þetta allt með loforði um að yrði borgað á morgun, alltaf á morgun, en hún borgaði aldrei neitt. Svo þegar ég fór að setja hemla á þetta þá fór hún að draga heim til sín fólk sem virtist vera í óreglu, fólk sem hún reyndi að fá pening hjá og mögulega fíkniefni.“

Viðmælandi DV segir að oft hafi slegið í brýnu milli konunnar og gesta hennar og þá hafi upphafist gífurleg læti, öskur, skellir og brothljóð. Oft bað hún nágranna sína um aðstoð við að koma gestunum sínum út úr húsi.

„Það þýddi ró í smá tíma en svo hélt þetta áfram, ár eftir ár, og varð bara miklu verra með tímanum. Þetta jókst líka af því hún vissi að hún gat alltaf beðið okkur um hjálp við að losna við gestina. Á tímabili var lögreglan hérna fyrir utan næstum því daglega út af henni eða gestunum hennar. Síðan var hún að stinga af frá ógreiddum fargjöldum með leigubílum. Það var ósjaldan að það komu reiðir leigubílstjórar á eftir henni og voru með læti.“

Hún segir einnig frá því að einu sinni hafi íbúð konunnar verið lögð í rúst af fólki sem hún hafi treyst til að gæta íbúðarinnar. Og svo þetta: „Ástandið versnaði líka mjög mikið þegar hún tók aftur saman við fyrrverandi kærastann sinn. Þau voru bæði mjög ofbeldisfull en hún þó meira.“

Segir hún jafnframt að líka hafi oft verið mikið ónæði af konunni þegar hún var ein heima. „Ef hún var eitthvað fúl þá vissu það allir í stigaganginum, það var traðkað svo rosalega að það hljómaði eins og einhver væri að djöflast á klossum í íbúðinni fyrir ofan mig.“

Var hætt að sofa

„Ég var með áfallastreituröskun fyrir og ástandið á mér snarversnaði við þetta. Ég var orðin mjög taugaveikluð og hætt að geta sofið. Ég sótti um milliflutning þegar ég varð ófrísk en ég fékk hann ekki fyrr en strákurinn minn var næstum því tveggja ára gamall,“ segir konan, sem telur algjörlega ótækt að ala upp börn í því ástandi sem ríkir í stigaganginum.

Hún segist vera mjög ánægð á þeim stað þar sem hún býr núna og þar sé ekkert ónæði. Flestir íbúarnir í blokkinni í Írabakka 2-16 eru að hennar sögn rólegt fjölskyldufólk sem vill lifa í friði. En nokkrir íbúar eru í óreglu og valda miklu ónæði.

„Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði,“ segir hún en aðspurð um viðbrögðin segir hún að þau hafi í raun verið engin fyrir utan vélrænt svar um að erindi væri móttekið. Telur hún að leigjendur hjá Félagsbústöðum séu ekki bornir út nema þeir standi ekki í skilum með leigu.

„Hún er ekki fjárráða. Einhver sér um að greiða leiguna fyrir hana og henni eru skammtaðir fjármunir,“ segir konan um leigjandann erfiða.

„Hún býður vandræðunum heim til sín og tekur aldrei ábyrgð á neinu,“ segir konan að lokum um þennan fyrrverandi nágranna sinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið
Fréttir
Í gær

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“