fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. júní 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásthildur Sturludóttir er orðlaus af undrun yfir beiðni Vegagerðarinnar til skipulagsráðs Akureyrarbæjar þess efnis að hjartalaga umferðarljós í bænum verði fjarlægð.

Fjallað var um málið í gær.

Í frétt Akureyri.net kom fram að rökin væru þau að hjartalöguð umferðarljós standist hvorki kröfur um umferðarmerki né umferðaröryggi.

„Vegagerðinni hafa borist ábendingar um að hjörtu í umferðarljósum á Akureyri ógni umferðaröryggi. Málið hefur verið tekið til skoðunar innanhúss hjá Vegagerðinni og ljóst er að hjartalöguð umferðarljós standast hvorki kröfur um umferðarmerki né umferðaröryggi. Af öryggisástæðum og til að fyrirbyggja hugsanleg slys fer Vegagerðin því fram á að hjörtun verði fjarlægð úr umferðarljósum sem henni tilheyra.“

Skipulagsráð ákvað að fresta afgreiðslu málsins á fundi sem haldinn var á miðvikudag.

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, tjáði sig um málið í færslu á Facebook í gærkvöldi. Þar benti hún á að hjörtun í rauðu umferðarljósunum væru eitt af einkennismerkjum Akureyrar og raunar stór þáttur í ímynd bæjarins þess efnis að þar sé tekið á móti öllum með hlýju og kærleika.

„Ef ég á að segja alveg eins og er, þá bara skil ég ekki hvað Vegagerðinni gengur til og er ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun. Þau voru sett í umferðarljósin sumarið 2008 þannig að Vegagerðin hefur haft 17 ár til að fjalla um „þá ógn“ sem af þeim stafar! Kæra fólk, reynum nú að brosa með hjartanu og notum tímann í eitthvað þarfara en að vera með leiðindi út í hjörtun okkar!”

Undir þetta tóku margir í athugasemdum við færsluna. „Hlýlegt að lenda á ljósum á Akureyri,“ sagði til dæmis í einni og í annarri sagði: „Ég er farin að hafa áhyggjur af verkefnastöðu Vegagerðarinnar.“

Sjá einnig: Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“

DV ræddi í gærkvöldi við Margréti Blöndal sem segja má að sé upphafsmanneskjan að baki þessum hjartalaga umferðarljósum. Voru þau fyrst sett upp í tengslum við hátíðina Ein með öllu árið 2008 en Margrét var framkvæmdastjóri hátíðarinnar á þeim tíma.

„Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja,“ voru fyrstu viðbrögð Margrétar er DV bar málið undir hana. „Þegar við settum þau upp var tilgangurinn sá að skapa skemmtilega stemningu og biðja fólk um að haga sér fallega um Verslunarmannahelgina og ganga vel um. Það má alveg segja að þau hafi strax slegið í gegn og því ákvað Akureyrarbær að hafa þau áfram. Mér þykir afar vænt um þau og að mínu mati ættum við frekar fjölga rauðum hjörtum í umferðarljósum en fækka þeim, svona í ljósi frétta af ástandi heimsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Í gær

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum