Forseti Bandaríkjanna víkur sér undan beinum átökum við Rússland. Rússar hafa að vísu ráðist beint á NATÓ en Bandaríkjastjórn vill ekki láta hart mæta hörðu. „Ég vil ekki eiga þriðju heimsstyrjöldina á hættu vegna lítils bæjar í Eistlandi,“ segir forsetinn á símafundi með öðrum leiðtogum NATÓ, nokkrum klukkustundum eftir að Rússar hertóku bæinn Narva í mars 2028 og gengu á land á eistnesku eyjunni Hiiumaa til að loka fyrir aðgang að Eystrasalti úr austri.
Þessi sviðsmynd er skáldskapur og kemur úr bók þýska hernaðarsérfræðingsins Carlo Masala „Ef Rússland sigrar – sviðsmynd“ sem var nýlega gefin út í Þýskalandi. Hún hefur vakið mikla athygli og umræðu og situr á toppi metsölulista.
Framtíðarsýn Masalas er unnin út frá að Úkraína hafi verið neydd til að sættast á slæman friðarsamning 2025. Samningurinn hafi skilið landið eftir vængbrotið og í slæmu ásigkomulagi. Í Rússlandi gleðjast menn yfir ráðalausum Vesturlöndum, sem vanmeta enn hættuna sem stafar frá Rússlandi, sem eiga erfitt með að standa saman.
En þessi framtíðarsýn og skrif Masala um hugsanlega þróun mála í náinni framtíð er kannski ekki svo fjarri raunveruleikanum. Masala er prófessor við þýska herháskólann í München og er vel kunnugur stöðu öryggispólitískra mála og umræðunni um hvert Rússland stefnir þessi árin.
Hann fléttar auðvitað töluverðri dramatík inn í söguþráðinn og getur í eyðurnar en útgangspunktur sögunnar er þó hin raunverulega staða mála í dag.
Í framtíðarsýn hans hefur Vladímír Pútín látið af embætti en það gerði hann þegar stríðinu í Úkraínu lauk. Ungur teknókrati tók við embættinu af honum og heldur sig fast við árásargjarna utanríkispólitík Kremlverja.