fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Nýr framkvæmdastjóri hjá Sjálfstæðisflokknum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 4. apríl 2025 17:45

Þórður Þórarinsson fráfarandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Björg Ásta Þórðardóttir nýr framkvæmdastjóri, Guðrún Hafsteinsdóttir formaður flokksins, Vilhjálmur Árnason ritari flokksins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að flokkurinn hafi ráðið nýjan framkvæmdastjóra til starfa. Er þar á ferðinni Björg Ásta Þórðardóttir sem tekur við af Þórði Þórarinssyni sem verið hefur framkvæmdastjóri flokksins síðan 2014. Tilkynningu flokksins má sjá hér fyrir neðan í heild sinni:

Sjálfstæðisflokkurinn hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra, Björgu Ástu Þórðardóttur.

Um nýjan framkvæmdastjóra

Björg Ásta Þórðardóttir lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2014 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2015. Hún hefur víðtæka reynslu af lögfræðistörfum, meðal annars sem yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins, lögfræðingur hjá Félagi atvinnurekenda og fulltrúi hjá Málflutningsstofu Reykjavíkur. Hún hefur einnig starfað hjá lögreglunni á Suðurnesjum og síðast sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.

Björg hefur setið í fjölmörgum stjórnum og nefndum á vegum stjórnvalda og í atvinnulífinu. Hún er fædd og uppalin á Suðurnesjum og á að baki farsælan knattspyrnuferil með íslenskum félagsliðum og landsliðinu. Hún hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum á vettvangi íþrótta, m.a. sem fulltrúi í dómstól ÍSÍ og í aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Þá hefur hún gegnt formennsku í MS-félagi Íslands.

Björg Ásta er búsett á Suðurnesjum ásamt sambýliskonu sinni, Ósk Laufeyju Breiðfjörð, og eiga þær saman þrjú börn.

„Það er mér mikill heiður og ánægja að fá þetta tækifæri. Ég hlakka til að takast á við þetta mikilvæga verkefni, vinna með frábæru fólki innan flokksins og leggja mitt af mörkum til að efla starfsemi Sjálfstæðisflokksins um allt land,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, nýr framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.

Þórður Þórarinsson lætur af störfum eftir 11 ára starf sem framkvæmdastjóri flokksins, en hann tók til starfa í Valhöll 1. mars 2014. Þórður hefur leitt starf skrifstofunnar í fernum alþingiskosningum, þrennum sveitarstjórnarkosningum og haldið fjóra landsfundi. Þess má einnig geta að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur undanfarin ár lagt upp í fimm hringferðir um landið í tengslum við kjördæmaviku.

Framkvæmdastjóraskiptin fóru fram á miðstjórnarfundi flokksins fyrr í dag. Á fundinum færði formaður flokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, Þórði bestu þakkir fyrir hans mikilvæga og óeigingjarna starf í framlínunni síðastliðinn rúman áratug. Hans verður saknað á skrifstofu flokksins og af flokksmönnum öllum í þeirra störfum um allt land.

Samkomulag hefur orðið um að Þórður muni starfa við hlið nýs framkvæmdastjóra næstu vikurnar og sem ráðgjafi flokksins næstu mánuði.

„Á þessum tímamótum er mér þakklæti efst í huga fyrir þann drjúga tíma sem ég hef starfað í Valhöll fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það hafa verið forréttindi að fá að lifa og hrærast í innsta hring þjóðmálanna, kynnast fólki af öllu landinu og úr ólíkum starfsstéttum sem vill leggja sitt af mörkum fyrir hugsjónir okkar og vinna að framfaramálum fyrir land og þjóð. Ég hef á þessum tíma eignast fjölda vina til lífstíðar, nokkuð sem ég lít á sem dýrmæta gjöf, og vil koma á framfæri þökkum til allra flokksmanna fyrir traust og góð samskipti. Samstarfsmönnum af skrifstofunni færi ég sérstakar þakkir, öllum í þingflokknum og trúnaðarmönnum í flokksstarfinu færi ég mínar bestu kveðjur,“ sagði Þórður á þessum tímamótum.

Áður en Þórður kom til starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn var hann framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, samstarfsvettvangs þjóðþinga Íslands, Færeyja og Grænlands. Maki Þórðar er Marta María Ástbjörnsdóttir sálfræðingur og eiga þau þrjá syni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“

Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka

Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Atli segir Samfylkinguna senda kjósendum sínum fingurinn: „Grátlegt að fylgjast með því“

Atli segir Samfylkinguna senda kjósendum sínum fingurinn: „Grátlegt að fylgjast með því“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar

Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóllinn vísar málum lyfjafræðings og þolanda sem kærðu íslenska ríkið

Mannréttindadómstóllinn vísar málum lyfjafræðings og þolanda sem kærðu íslenska ríkið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segir að lögmanni hennar hafi verið hótað – „Þetta er háttsett fólk sem er að hafa samband við minn lögmann og hóta honum“

Margrét segir að lögmanni hennar hafi verið hótað – „Þetta er háttsett fólk sem er að hafa samband við minn lögmann og hóta honum“