fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Fréttir

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 18. apríl 2024 10:00

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar deyjandi einstaklingar hafa ekki möguleika á að taka upplýsta og sjálfráða ákvörðun um eigin endalok, grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða,“ 

skrifar Ingrid Kulman, formaður Lífsvirðingar, sem berst fyrir löggjöf um dánaraðstoð, í pistli á Vísi.

Segir hún að samkvæmt tölum frá Hagstofu Bretlands, eða Office for National Statistics, taki árlega á bilinu 300 til 650 dauðvona einstaklingar í Bretlandi eigið líf. Á milli 3,000 til 6,500 deyjandi einstaklingar geri tilraun til þess. 

Vísar hún í grein sundmannsins Antons Sveins McKee og segir áhrifin á viðkomandi, aðstandendur þeirra og aðra djúpstæð, eins og kemur fram í grein Antons: „Sjúklingar þurfa að ganga í gegnum dimman dal þar sem þeir taka þessa ákvörðun í einrúmi og án þess að geta rætt hana við neinn. Áfallið leggst á fjölskyldur og aðstandendur en einnig lögreglu og sjúkraliða sem þurfa að sinna skyldum sínum í kringumstæðum sem þessum. Þetta veldur alltaf skaða fyrir samfélagið og sárkvaldir einstaklingar þurfa að að vinna sig upp úr honum sem tekur jafnvel mörg ár.“

Sjá einnig: Afreksmaður rifjar upp óbærilegar þjáningar föður síns – Styður frumvarp um dánaraðstoð

„Nýverið birti Anton Sveinn hjartnæma og persónulega grein á visir.is um örlög föður síns, sem þjáðist af taugahrörnunarsjúkdómnum MND auk þess að vera til viðtals í þættinum Ísland í dag. Faðir hans tók ákvörðun um að binda enda á líf sitt af sjálfsdáðum eftir að hafa hrakað mikið á skömmum tíma. Anton lýsir líðan sinni: „Það sem var erfiðast var að fá ekki tækifæri til að kveðja hann í hinsta sinn og segja honum hversu mikið ég elskaði hann. Það er ennþá sárt í dag að hugsa til hans hinstu skrefa, aleinn og án ástvina sinna.“

Minni sorg eftir dánaraðstoð

Ingrid segir Anton í grein sinni leggja áherslu á mikilvægi mannúðar og virðingar í garð einstaklinga sem þjást af ólæknandi sjúkdómum og búa við ómeðhöndlanlega og óbærilega þjáningu með því að veita þeim möguleikann á dánaraðstoð. 

„Rannsóknir hafa sýnt að aðstandendur upplifa almennt minni sorg eftir dánaraðstoð. Í tímaritinu Journal of Pain and Syptom Management var birt grein árið 2016 sem fjallaði um áhrif dánaraðstoðar á sorg og sálarangist aðstandenda. Rannsóknin skoðaði muninn á sorg og sálarástand aðstandenda þeirra sem fengu dánaraðstoð og þeirra sem misstu ástvini af náttúrulegum orsökum. Niðurstöður sýndu að aðstandendur þeirra sem fengu dánaraðstoð upplifðu almennt minni sálarangist og voru líklegra til að jafna sig fyrr. Þessi hópur gat betur undirbúið sig fyrir andlát ástvinar og notið þess tíma sem eftir var á meðvitaðan og markvissan hátt, sem reyndist vera mikilvægur þáttur í sorgarferlinu,“ skrifar Ingrid og heldur áfram:

„Rannsókn sem framkvæmd var í Kanada og Hollandi sýndi fram á að nánustu aðstandendur krabbameinssjúklinga sem fengu dánaraðstoð upplifðu vægari sorgareinkenni og minni áfallastreitu en aðstandendur krabbameinssjúklinga sem dóu náttúrulegum dauða. Aðstandendur fundu huggun í því að ástvinur þeirra hafði haft stjórn á eigin lífslokum og dáið á þeim forsendum sem hann kaus. Þeir upplifðu ákveðið öryggi í því að vita að ástvinur þeirra þyrfti ekki að þjást óþarflega og töldu það vera lykilþátt í sorgarferlinu að hafa getað verið viðstaddir dánarstundina og kvatt ástvininn. Þeir sögðu einnig að ferlið í kringum dánaraðstoðina hefði verið þroskandi og þeir upplifðu þakklæti. Margir nefndu mikilvægi þess að hafa getað rætt opinskátt um tilfinningar sínar og dauðann við ástvininn en það auðveldaði mörgum að sætta sig við og undirbúa sig fyrir yfirvofandi andlát. Sumir lýstu þakklæti fyrir tækifærið til að leysa úr ágreiningi eða rifja upp dýrmætar minningar. Þó að fólk upplifi vitaskuld sorg og söknuð við ástvinamissi, er mikilvægt að dauðdaginn sé eins þjáningarlaus og með eins mikilli mannlegri reisn og hugsast getur.“

Að eiga val um dánaraðstoð

Ingrid segir fjölda rannsókna hafa leitt í ljós að „deyjandi einstaklingar sem kjósa dánaraðstoð líta ekki á dauðann sem markmið í sjálfu sér heldur sem úrræði til að losna undan óbærilegum þjáningum þegar engin von er um bata. Þeir vilja ekki deyja en treysta sér ekki til að lifa lengur. Anton veltir upp þýðingarmikilli spurningu í grein sinni: „Af hverju er ákvörðun um að fá að enda lífið þegar ekkert annað blasir við en dauðinn ekki í okkar höndum?“ 

Við hjá Lífsvirðingu tökum heilshugar undir þess orð Antons og hvetjum til þess að frumvarp um dánaraðstoð verði samþykkt. Yfir 200 milljónir manna í 16 löndum um allan heim hafa nú þegar möguleika á dánaraðstoð.

Hvenær mun Ísland taka þetta mikilvæga skref?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“
Fréttir
Í gær

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun
Fréttir
Í gær

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda