„Ég verð að viðurkenna að mér brá nokkuð við að sjá hversu langur listinn var og nöfn hvaða verslana voru á honum,“ segir Henry Alexander Henrysson heimspekingur í aðsendri grein á vef Vísis.
Í grein sinni segir Henry að hann hafi á laugardag fengið sent skjáskot af auglýsingu þar sem Hvalur hf. sagði frá útsölustöðum á sýrðu hvalrengi frá fyrirtækinu. Segir Henry að listinn hafi verið furðu langur.
„Nú er að svo að allar þjóðir eiga sér mat sem er alla jafna ekki á borðum fólks heldur er dreginn fram við viss tilefni. Erfitt er að berjast gegn slíkum hefðum,“ segir Henry sem tekur fram að með greininni sé hann ekki að agnúast út í einstaka fisksala eða kjötverslanir sem eru eðlilegur vettvangur fyrir sölu á sýrðu hvalrengi.
„Og ég vil taka fram að ég er ekki með þessari grein að hvetja til þess að neinum verslunum sé refsað með sniðgöngu eða öðru. Ég get hins vegar ekki annað en furðað mig á því að sjá að kjöt hvala sem voru veiddir á síðustu vertíð geti ratað í hillur á íslenskum stórmörkuðum. Mér finnst einkennilegt að verslunarkeðjur sem eru í sífellt meira mæli að stæra sig af samfélagsábyrgð og umhverfisstefnum skuli selja kjöt frá veiðum sem vitað er að taka ekki tillit til nútímalegra skilyrða um velferð dýra,“ segir hann í grein sinni.
Henry segir að líklegasta skýringin á því hvers vegna verslanirnar hafa tekið hvalkjötið í sölu sé að starfsfólk hafi misskilið nýlegt álit umboðsmanns Alþingis og talið að það hafi bæði græn- og hvítþvegið hvalveiðar Hvals hf.
„En svo var nú aldeilis ekki og mikilvægt að halda því til haga. Umræðan undanfarnar vikur hefur þó verið á þann hátt að matvælaráðherra hafi tekið óvænta, órökstudda og gerræðislega ákvörðun í júní á síðastliðnu ári. Álit umboðsmanns felur ekki í sér slíkan dóm,“ segir Henry og bætir við að álitið viðurkenni að ráðherra hafi einmitt heimild í lögum um hvalveiðar til að stjórna veiðunum við Ísland með því að setja reglugerðir þar að lútandi, til dæmis varðandi lengd veiðitímabils.
„Vissulega er mögulegt að starfsfólk stórmarkaða hafi ekki misskilið álit umboðsmanns. Mögulega skiptir dýravelferð fyrirtækin engu máli og þau muni því halda áfram að selja allt kjöt sem byrgjar rétta þeim, sama hvaðan það kemur, og sama hvernig staðið var að veiðum, verkun og vinnslu,“ segir Henry Alexander og bætir við að þá væri gott að fá það staðfest.
„Maður hefur oft séð ábyrgðarhluta samfélagsábyrgðar fluttan yfir á þriðja aðila. Hver veit nema búðunum finnist þær ekki bera nokkra ábyrgð á því hvað þær selja. En ef þetta eru einfaldlega klár mistök, til dæmis hjá Krónunni sem hefur verið í fararbroddi þegar kemur að umhverfismálum og samfélagsábyrgð, þá væri einnig gott að fá staðfestingu á að um mistök eða kæruleysi hafi verið að ræða,“ segir hann og heldur áfram:
„Góðu fréttirnar í þessari sögu allri saman eru þrátt fyrir allt þær að þótt skammtar af sýrðu hvalrengi hafi ratað í verslanir um þennan þorra þá hafa veiðar á stórhvelum við strendur Íslands nú endanlega lagst af. Nýtt leyfi verður ekki gefið út samkvæmt úreltum lögum. Mér skilst á umsjónarfólki þorrablóta um allt land að mest af sýrðu hvalrengi endi í ruslinu eftir hvert blót enda ekki matur sem er ofarlega á óskalista fólks í samtímanum. Hugsanlega er þrátt fyrir allt ástæða til að fólk setji örlitla flís af þessu súra og litlausa spiki á diskinn sinn, rifji upp þau fáu myndskeið af hvaladrápinu sem rötuðu fyrir augu almenning og ígrundi örlítið fáfengileika og tilgangsleysi hvalveiðanna í september 2023.“