fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
Fréttir

Vekur athygli – Er hún næst í röðinni?

Ritstjórn DV
Mánudaginn 8. janúar 2024 04:38

Kim Jong-un og Kim Ju-ae. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nóvember 2022 birtist Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, skyndilega opinberlega með barnunga dóttur sína. Eftir þetta hefur hún nokkrum sinnum komið fram með föður sínum, aðallega þegar hann hefur skoðað ný vopn eða heimsótt hersveitir.

Suðurkóreska leyniþjónustan telur að dóttirin, sem heitir Kim Ju-ae og er talin vera um 10 ára gömul, muni taka við völdum af föður sínum þegar jarðvist hans tekur enda.

Leyniþjónustan sendi nýlega frá sér mat á þessu og er það í fyrsta sinn sem hún hefur gert mat á dótturinni og hlutverki hennar. The Guardian skýrir frá þessu.

Þegar hún birtist fyrst með föður sínum voru þau feðgin viðstödd tilraunaskot á langdrægu flugskeyti. Þar mættu þau og leiddu hvort annað. Í kjölfarið hefur hún fylgt föður sínum á marga stóra viðburði.

Þau komu saman þegar haldið var upp á dag flughersins á síðasta ári og var þá tekin mynd af henni fyrir standandi fyrir framan föður sinn. Bæði voru þau í síðum leðurfrökkum og með sólgleraugu.

Á nýársfögnuði kyssti einræðisherrann hana á kinnina og hún endurgalt kossinn.

The Guardian segir að senur af þessu tagi hefðu fyrir ekki svo löngu þótt óhugsandi í Norður-Kóreu.

Í norðurkóreskum fjölmiðlum, sem allir eru undir járnhæl einræðisstjórnarinnar, er Kim Ju-ae lýst sem „ofurelskuðu“ og „virtu“ barni.

AP hefur eftir talsmanni suðurkóresku leyniþjónustunnar að þrátt fyrir þetta mat hennar, þá telji hún að ekki sé hægt að útiloka aðra möguleika varðandi hver tekur við þegar Kim Jong-un hverfur af sjónarsviðinu. Ástæðan er að Kim Jong-un er enn ungur og ekki hefur verið skýrt opinberlega frá því að hann glími við heilsufarsvanda en hins vegar er vitað að hann glímir við offitu, reykir mikið og er að sögn frekur til áfengis. Þess utan á hann son sem er eldri en Kim Ju-ae og einnig barn sem er yngra en hún en kyn þess hefur ekki verið staðfest.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Írska lögreglan styðst við sýnir miðla í leitinni að Jóni Þresti

Írska lögreglan styðst við sýnir miðla í leitinni að Jóni Þresti
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Margeiri dæmdar miskabætur vegna flutnings í starfi- Átti í ástarsambandi við samstarfskonu sem kvartaði undan honum

Margeiri dæmdar miskabætur vegna flutnings í starfi- Átti í ástarsambandi við samstarfskonu sem kvartaði undan honum
Fréttir
Í gær

Óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í Hafnarfjörð – „Ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu“

Óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í Hafnarfjörð – „Ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu“
Fréttir
Í gær

Þrír með stöðu sakbornings vegna brunans á Stuðlum þegar 17 ára piltur lést

Þrír með stöðu sakbornings vegna brunans á Stuðlum þegar 17 ára piltur lést
Fréttir
Í gær

Angjelin Sterkaj gifti sig í Grundarfjarðarkirkju – Afplánar dóm fyrir morðið í Rauðagerði

Angjelin Sterkaj gifti sig í Grundarfjarðarkirkju – Afplánar dóm fyrir morðið í Rauðagerði
Fréttir
Í gær

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskylduhjálp Íslands fékk ekki styrk í ár því samtökin sóttu ekki um hann

Fjölskylduhjálp Íslands fékk ekki styrk í ár því samtökin sóttu ekki um hann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flóttamaður grunaður um hrottaleg brot gegn eiginkonu sinni og fimm börnum

Flóttamaður grunaður um hrottaleg brot gegn eiginkonu sinni og fimm börnum