fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Fréttir

„Þegar þú brýtur á konu brýtur þú á framtíð hennar, börnum hennar, huga, athygli, ástarlífi, heilsufari, starfsframa“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 6. mars 2023 20:41

Þórunn Antonía

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég varð til þess að hann fékk 6 ára fangelsi. Hæsti dómur sem hefur verið kveðinn upp gegn kynferðisafbrotamanni á Íslandi. Ég kærði hann. Ég gaf skýrslu. Skrifaði greinargerð um áhrif ofbeldis á líf og heilsu kvenna. Ég tók fyrir hvaða áhrif það hefur á traust, tengslamyndun. Fæðingarferli. Barneignir. Geðheilbrigði… Þegar þú brýtur á konu brýtur þú á framtíð hennar, börnum hennar, huga, athygli, ástarlífi, heilsufari, starfsframa…Ég gæti endalaust haldið áfram,“ segir Þórunn Antonía Magnúsdóttir, tónlistarkona og einn brotaþola Jóhannesar Tryggva Svein­björns­sonar í færslu á Facebook.

Aníta stóð í þeirri trú að gerandi hennar fengi refsingu – „Éttu skít Jóhannes“

Jóhannes hlaut sex ára fangelsi fyrir kyn­ferðis­brot gegn Þórunni Antoníu og þremur öðrum konum. Ein þeirra, Aníta Hauksdóttir, sagðist í færslu fyrir helgi sig og fleiri brota­þola Jóhannesar hrylla við því að fólk fengi falskar upp­lýsingar um hann.

Tilefni skrifa Þórunnar Antóníu er, líkt og Anítu, frétt á Vísi á föstudag þar sem sagt er frá  söfnunarsíðu Jóhannesar, en hann hyggst fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.

„Já góðan daginn litla hraun? Ég ætla panta nudd tíma handa þessum manni takk, hann var kærður af yfir 35 konum. Hann nauðgar 14 ára stelpum og hefur misnotað vald sitt og traust og smánað sjálfan sig og heila starfstétt.“

„Hér er frétt um að hann sé með peningasöfnun því hann sitji saklaus i fangelsi og stærsti miðill landsins gefur þessari söfnun hér ókeypis auglýsingu. Rengir i senn sársauka og sannleiksgildi kvenna sem hann braut á. Sem og bara allra þolenda.“ 

Segir Þórunn Antonía að hvorki hún né aðrir þolendur Jóhannesar hafi fengið bætur greiddar.

„Ég er einn af hans ótal þolendum. Sem kærði. Ekki til þess að skemmta mér við það eða fá bætur við fengum engar. Ég kærði fyrir mig. Dóttir mína. Dætur ykkar. Eigum við kannski að hafa hann að gefa frí nudd á Ingó tónleikunum og fá Steingrim Njálsson i barnagæsluna? Nei segi nú bara svona. Enginn af þolendum þessa manns hefur fengið bætur. En endilega auglýsum söfnun fyrir hann eða bara alla gerendur þeir eiga svo erfitt svona útskúfaðir greyin.“

Með dómi héraðsdóms Reykjaness 6. janúar 2021 var Jóhannes dæmdur til 5 ára fangelsis og til að greiða brotaþolum sínum 1.800.000 kr., 1.500.000 kr., 1.000.000 kr. og 1.000.000 kr. í miskabætur auk vaxta frá tilgreindum dagsetningum. Auk þess var hann dæmdur til að greiða 1.586.333 krónur í útlagðan sakarkostnað, 3.578.795 kr. réttargæsluþóknun  og  9.176.000 kr. málsvarnarlaun verjanda síns. Dóminn má lesa hér.

Með dómi Landsréttar 5. nóvember 2021 var dómurinn þyngdur um eitt ár. Ákvæði hins áfrýjaða dóms um einkaréttarkröfur [miskabæturnar] voru staðfestar og Jóhannes dæmdur til að greiða áfrýjunarkostnað málsins, 4.948.930 kr. Dóminn má lesa hér.

Í ársbyrjun 2022 var Jóhannesi dæmdur tólf mánaða hegningarauki í Héraðsdómi Reykjaness þegar hann var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn fimmtu konunni. Hæstiréttur hafnaði málsskoti Jóhannesar, meðal annars með þeim rökum að niðurstaða Landsréttar væri að verulegu leyti byggð á sönnunargildi munnlegs framburðar og það mat verði ekki endurskoðað hjá Hæstarétti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný Eir tekur við Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri

Oddný Eir tekur við Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skúli og stjórn WOW air sýknuð af 18,5 milljón evra skaðabótakröfu fjárfesta

Skúli og stjórn WOW air sýknuð af 18,5 milljón evra skaðabótakröfu fjárfesta