Barnavernd Reykjavíkur hefur stefnt 26 ára gamalli móður fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krefst þess að hún verði svipt forsjá yfir tveimur sonum sínum. Konan er fædd í Litháen en hefur núna óþekktan dvalarstað í Svíþjóð. Synir hennar tveir eru á Íslandi og hefur hún ekki hitt þá síðan í desember árið 2021.
Stefna Barnaverndar Reykjavíkur í málinu er birt í Lögbirtingablaðinu í dag.
Annar drengurinn er fæddur árið 2015 en hinn 2021. Fram kemur í stefnunni að konan kom hingað til lands haustið 2020 „án þess að hafa hér vinnu eða geta framfleytt sér með öðrum hætti.“ Hún fór úr landi í desember árið 2021. Forsjárlaus faðir drengjanna býr í Litháen. Barnaverndaryfirvöld hafa haft afskipti af konunni og sonum hennar frá því í maí 2021 en átta tilkynningar hafa borist vegna drengjanna.
„Mál stefndu kom fyrst til vinnslu hjá barnaverndaryfirvöldum í maí 2021 þegar tilkynning barst frá þjónustumiðstöð þar sem áhyggjum var lýst af afar bágum aðstæðum eldri drengsins en stefnda bjó þá ásamt honum og atvinnulausum kærasta sínum á hótelherbergi. Hafði drengurinn ekki hlotið neina þjónustu hérlendis þar sem stefnda hafði ekki skráð hann hjá íslenskum yfirvöldum,“ segir ennfremur í stefnu barnaverndar.
Í stefnunni kemur fram að eldri drengurinn hefur lýst því yfir að hann vilji ekki búa hjá móður sinni en sá yngri er talinn of ungur til að geta veitt slíkt álit.
Í stefnunni eru rakin afskipti barnaverndar af konunni og sonum hennar og kemur meðal annars fram að hún haði komið syni sínum í pössun hjá ókunnugum nágranna, sem grunur var um að neytti fíkiefna, á meðan hún dvaldist á sjúkrahúsi vegna fæðingar yngri sonarins. Eftir að konan útskrifaðist af fæðingardeildinni flutti hún á vistheimili barna ásamt sonum sínum. Kærasti hennar fór á þessum tíma í meðferð á Vogi en lauk henni ekki. Síðan segir í stefnunni:
„Í bókun meðferðarfundar, dags. 25. ágúst 2021, kemur fram að þar sem verulegar áhyggjur voru af aðstæðum stefndu og sona hennar var það mat starfsfólks stefnanda að nauðsynlegt væri að gera áætlun um meðferð málsins þar sem m.a. yrði lagt mat á hæfni stefndu til að annast drengina. Taldi starfsfólkið að ef stefnda yrði ekki til samvinnu yrði að leggja til við Barnaverndarnefnd Reykjavíkur að úrskurða um vistun drengjanna utan heimilis í tvo mánuði skv. 27. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002“
Næsta dag yfirgaf konan vistheimilið með börnin og tókst ekki að hafa upp á henni fyrr en nokkrum mánuðum síðar. Dvaldist hún þá í afar lítilli og óbarnvænni stúdíóíbúð í iðnaðarhúsnæði að Krókhálsi. Fáeinum dögum síðar beitti kærasti hennar hana ofbeldi og rak hana á dyr ásamt sonum hennar. Dvaldist hún eftir það í Kvennaathvarfinu og síðan á vistheimili barna. Aftur yfirgaf hún vistheimilið með drengina án samráðs við starfsfólk en fjölskyldan fannst í desember í sumarbústað í Ölfusborgum. Síðan segir:
„Þar sem verulegar áhyggjur voru af aðstæðum drengjanna í umsjá stefndu og þeir jafnvel taldir í hættu var samþykkt að beita neyðarráðstöfun skv. 31. gr. barnaverndarlaga og ákveðið að þeir skyldu dvelja á vistheimili barna. Voru drengirnir því færðir þangað en stefnda vildi ekki fara þangað sjálf þar sem hún kvað líkur á því að hún myndi yfirgefa vistheimilið aftur…“
Konan hefur núna ókunnan dvalarstað í Svíþjóð og segir barnavernd að erfiðlega hafi gengið að koma á eðlilegum samskiptum og samstarfi við hana. „Stefnda hefur nú ekki hitt syni sína frá 13. desember 2021 og á þeim tíma ekki sinnt uppeldisskyldum sínum, fylgt eftir áætlun um meðferð máls eða á annan hátt verið til samvinnu við barnavernd…“
Faðir drengjanna í Litháen hefur lýst yfir vilja til að taka þá að sér. Hefur barnavernd verið í samvinnu við barnaverndaryfirvöld í Litháen um að taka út aðstæður föðurins þar. Hann hefur hins vegar ekki viljað koma til Íslands til að hitta drengina.
Barnavernd Reykjavíkur gerir kröfu um að konan verði skipt forsjá beggja drengjanna á grundvelli a. og d. liða 1. málsgreinar 29. barnarverndarlaga. Þar segir að heimilt sé að krefjast þess fyrir dómi að foreldri sé svipt forsjá ef, annars vegar a:
„að daglegri umönnun, uppeldi eða samskiptum foreldra og barns sé alvarlega ábótavant með hliðsjón af aldri þess og þroska“
og hins vegar d:
„fullvíst að líkamlegri eða andlegri heilsu barns eða þroska þess sé hætta búin sökum þess að foreldrar eru augljóslega vanhæfir til að fara með forsjána, svo sem vegna vímuefnaneyslu, geðrænna truflana, greindarskorts eða að breytni foreldra sé líkleg til að valda barni alvarlegum skaða.“
Málið verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þann 15. ágúst næskomandi og er konunni stefnt til að mæta þar og svara til saka en að öðrum kosti gangi útivistardómur í máli hennar og farið verði að kröfum stefnenda.