fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Helgi Seljan segir upp á RÚV – „Þannig hefur það ekki verið og má ekki verða“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 13. janúar 2022 13:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan hefur sagt upp störfum hjá RÚV en hann hefur á undanförnum árum séð um fréttaskýringaþáttinn Kveik.

Helgi, sem hefur starfað hjá RÚV frá árinu 2006, segir frá uppsögn sinni í færslu sem hann birti inni á lokuðu vefsvæði starfsmanna RÚV. Kjarninn vakti athygli á færslunni en í henni segir Helgi hafa metið það sem svo að nú væri rétti tíminn til að takast á við nýjar áskoranir á nýjum stað.

„Ég ætla þó ekki að halda því fram að atburð­ar­rás und­an­far­inna miss­era hafi ekki haft nein áhrif á að ég yfir­leitt fór að velta þessum mögu­leika fyrir mér. Ég skil þó við RÚV sáttur við allt og alla, vit­andi það að öll höfum við lært og munum draga lær­dóm af því sem gengið hefur á,“ segir Helgi í færslunni.

Þá segist hann gera sér grein fyrir því að undanfarna mánuði hafi aðrir reynslumiklir starfsmenn RÚV einnig hætt störfum. Hann segir það hafa gert ákvörðun sína um að hætta erfiðari.

Sjá einnig: Orðið á götunni:Rúvarar flýja ofan af Efstaleiti í unnvörpum – Verður Helgi næstur?

„Að lokum vil ég segja þetta: Rík­is­út­varpið og starfs­fólk þess á ekki að þurfa að stilla upp í vörn. Alls ekki. Rík­is­út­varpið á að sækja á. Innan þess­arar stofn­unar er ótæm­andi bunki af hæfi­leik­um, dugn­aði og elju sem skilar sér til fólks á hverjum degi. Og þannig á það að vera áfram. Auk þess að vera fræð­andi og skemmti­legt, á Rík­is­út­varpið líka að vera ögrandi og erfitt. Hlust­endum og áhorf­endum er eng­inn greiði gerður með því að sitja undir kurt­eis­is­hjali við skoð­anir þess og heims­mynd öllum stund­um. Þannig hefur það ekki verið og má ekki verða.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“

Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka

Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Atli segir Samfylkinguna senda kjósendum sínum fingurinn: „Grátlegt að fylgjast með því“

Atli segir Samfylkinguna senda kjósendum sínum fingurinn: „Grátlegt að fylgjast með því“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar

Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóllinn vísar málum lyfjafræðings og þolanda sem kærðu íslenska ríkið

Mannréttindadómstóllinn vísar málum lyfjafræðings og þolanda sem kærðu íslenska ríkið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segir að lögmanni hennar hafi verið hótað – „Þetta er háttsett fólk sem er að hafa samband við minn lögmann og hóta honum“

Margrét segir að lögmanni hennar hafi verið hótað – „Þetta er háttsett fólk sem er að hafa samband við minn lögmann og hóta honum“