„Þetta er án efa það lang heimskulegasta og hættulegasta sem ég hef séð túrista gera á Íslandi. Þessi gaur hoppaði yfir handriðið sem er efst hjá Skógarfossi og klifraði niður blautu og sleipu grasbrekkuna niður að brúninni á næstum 60 metra háaum fossi til að taka einhverjar myndir.“
Svona lýsir netverji, sem notast við nafnið BayAreaB5DashCamera á YouTube, myndbandi sem hann birti fyrir helgi á myndbandsveitunni undir yfirskriftinni: „Það hættulegasta sem ég hef séð túrista gera á Íslandi“.
Fréttablaðið vakti athygli á myndbandinu fyrr í dag en í því má sjá hvernig túristi stofnar sér í lífshættu til þess að taka myndir af fossinum. „Að sjá þennan hálfvita,“ heyrist sagt í myndbandinu á meðan túristinn tekur myndirnar.
Þegar túristinn er kominn til baka á útsýnispallinn gengur sá sem tók upp myndbandið að honum og segir: „Gerirðu þér grein fyrir því hversu hættulegt þetta var?“
Túristinn svarar spurningunni játandi. „Þetta er það sem ég lifi fyrir,“ segir túristinn svo. „Okei, þú ákveður hvað þú gerir, þetta er mjög heimskulegt.“
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan: