fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Fréttir

Helmingur laxa sem Fiskistofa veiddi í Mjólká í Arnarfirði reyndust vera eldislaxar

Ritstjórn DV
Mánudaginn 12. september 2022 10:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bráðabirgðaniðurstöður DNA greininga á þrjátíu og tveimur löxum sem Fiskistofa veiddi í Mjólká í Arnarfirði í ágúst síðastliðnum sýna að helmingur laxanna, sextán alls,  reyndust vera eldislaxar. Hinir laxarnir voru villtir. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að vísbendingar séu um að eldislaxarnir séu frá Haganesi í Arnarfirði en gat kom á kví hjá fyrirtækinu Arnarlaxi á því eldissvæði í ágúst í fyrra. Umrætt gat uppgötvaðist við neðansjávareftirlit og barst tilkynning til Matvælastofnun þann 30. ágúst. Neðansjávareftirlit hafði farið fram rúmum mánuði fyrr, þann 31. júlí, og var þá nótapokinn heill.

Í samráði við Fiskistofu lagði Arnarlax út net til að kanna hvort strok hefði átt sér stað en aðeins einn lax, um 1,3 kíló, veiddist. Eftir DNA greiningu var hægt að staðfesta að sá lax hefði sannarlega komið úr þeirri kví sem skemmdist.

Sá fyrirvari er þó sleginn að endurkeyra þurfi DNA-greininguna til að staðfesta bráðabirgðaniðurstöðurnar og í framhaldi af því verður hægt að rekja uppruna eldislaxanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ferðamaður segir frá raunum sínum á Íslandi – Vandræðin byrjuðu fyrir alvöru þegar lögreglan fór af vettvangi

Ferðamaður segir frá raunum sínum á Íslandi – Vandræðin byrjuðu fyrir alvöru þegar lögreglan fór af vettvangi
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Höfðu betur gegn landeigandanum – Fá að búa áfram í orlofshúsinu og hafa það á lóðinni

Höfðu betur gegn landeigandanum – Fá að búa áfram í orlofshúsinu og hafa það á lóðinni
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Engar Robin klementínur í verslanir fyrir þessi jól

Engar Robin klementínur í verslanir fyrir þessi jól
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur eftir frétt RÚV í gærkvöldi – „Tími til kominn að segja stopp. Heimilin á Íslandi hafa fengið nóg“

Vilhjálmur eftir frétt RÚV í gærkvöldi – „Tími til kominn að segja stopp. Heimilin á Íslandi hafa fengið nóg“
Fréttir
Í gær

Dæmdur fyrir að loka eiginkonu sína úti á svölum en fær vægan dóm vegna erfiðra fjölskylduaðstæðna

Dæmdur fyrir að loka eiginkonu sína úti á svölum en fær vægan dóm vegna erfiðra fjölskylduaðstæðna
Fréttir
Í gær

Segir Sigríði Björk mann að meiri – „Við þá sem hefðu viljað sjá meira blóð renna vil ég segja“

Segir Sigríði Björk mann að meiri – „Við þá sem hefðu viljað sjá meira blóð renna vil ég segja“
Fréttir
Í gær

Selfyssingurinn með smiðsaugað: Hver er Grímur Hergeirsson sem nú hefur verið settur ríkislögreglustjóri?

Selfyssingurinn með smiðsaugað: Hver er Grímur Hergeirsson sem nú hefur verið settur ríkislögreglustjóri?
Fréttir
Í gær

Ólafur bendir á önnur ámælisverð viðskipti á vakt Sigríðar Bjarkar – „Gamaldags vinavæðing, spilling af bestu sort“

Ólafur bendir á önnur ámælisverð viðskipti á vakt Sigríðar Bjarkar – „Gamaldags vinavæðing, spilling af bestu sort“