fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Gunnari Hrafni skilst að stúlkan sé fundin – „Manni var brugðið þegar hún féll allt í einu í yfirlið“

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 24. júlí 2022 14:39

Gunnar Hrafn Jónsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrr í dag greindi DV frá óhugnanlegri upplifun sem Gunnar Hrafn Jónsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, lýsti í færslu á Facebook-síðu sinni. Gunnar var að heimsækja vin sinn í Vesturbæ Reykjavíkur og var úti að reykja sígarettur með honum þegar ung og ofurölvi stólka mætti á svæðið. Gunnar og vinir hans reyndu að hjálpa stúlkunni sem var mjög ringluð.

„Við ákváðum að vera áfram úti til að sjá til þess að hún kæmist heim til sín, sem hún sagði að væri rétt hjá,“ sagði Gunnar í færslunni. „Svo missir hún ítrekað meðvitund, og ég tek púlsinn á henni sem er veikur. Við náum að vekja hana og gefa henni vatn en hún var alveg stjörf og gat ekkert sagt um hvar hún ætti heima nema að það væri í næsta nágrenni.“

Lesa meira: Gunnar Hrafn segir frá óhugnanlegri upplifun sem átti sér stað í nótt

Síðar tók Gunnar eftir því að púls stúlkunnar var orðinn veikur og ákvað hann þá að hringja í neyðarlínuna. Á meðan Gunnar var að lýsa aðstæðum fyrir starfsmanni neyðarlínunnar fór stúlkan hins vegar í næsta garð og fann Gunnar hana svo ekki aftur. Í færslunni sagðist Gunnar svo vona innilega að stúlkan hafi fengið hjálp frá lögreglunni sem lofaði að leita að henni í hverfinu.

Skilst að stúlkan sé heil á húfi

Eftir að DV fjallaði um efni færslunnar veitti Gunnar blaðamanni frekari upplýsingar um málið. „Mér skilst að hún sé fundin og allt í lagi með hana,“ segir hann og vill árétta tvennt sem fram kom í færslunni sem hann birti um málið. Í henni hafði hann sagt að stúlkan hefði þegið áfengi frá þeim en hann segir að hvorki hann né vinur hennar buðu henni áfengi. Þá afsakar hann ónákvæmt orðalag sitt í færslunni.

„Hún drakk eitthvað smá úr glasi sem hún fann en þá náðum við í vatn og reyndum að spjalla við hana, sem gekk ágætlega í fyrstu en svo fór sem ég lýsti,“ segir hann. Þá vildi hann einnig taka fram að ekki ver um partí að ræða. „Bara þrír menn og köttur að chilla í bakgarði og engar áfengisbirgðir til staðar,“ segir hann.

„Hún var nógu skýr fyrst til að segja hvað hún hét, hvar hún vinnur og hvaðan hún var að koma. Það var ekki síst þess vegna sem manni var brugðið þegar hún féll allt í einu í yfirlið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ný könnun: Meirihluti ætlar að segja Já

Ný könnun: Meirihluti ætlar að segja Já
Fréttir
Í gær

Krefja Matvælastofnun um svör vegna umsóknar um leyfi til umfangsmikilla dýratilrauna

Krefja Matvælastofnun um svör vegna umsóknar um leyfi til umfangsmikilla dýratilrauna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“

Guðni Már svaraði símtali konu: „Þú verður að lifa í þrjú ár í viðbót“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar

Sævar biður fólk um að anda með nefinu: Brottfararstöðvar hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan á Íslandi tók þátt í að uppræta peningaþvætti á iðnaðarskala í alþjóðlegri lögregluaðgerð

Lögreglan á Íslandi tók þátt í að uppræta peningaþvætti á iðnaðarskala í alþjóðlegri lögregluaðgerð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð