fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Arnar fór í hulduheimsóknir í Ríkið – ,,Eitt af hverjum fimm ungmennum ekki spurð um skilríki“

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Mánudaginn 28. mars 2022 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Sigurðsson, eigandi heildverslunarinnar Santé, segir engan vafa leika á að netverslun með áfengi sé heimil hér á landi. ,,Eins og títt er um fréttir hér á landi hefur stuttlega verið sagt frá skoðunum hinna ýmsu aðila en því miður er aldrei spurt nánar út í þau álit t.d. með framhaldsspurningu á borð við ,,af hverju?” Augljóslega ætti netverslun að vera fagnaðarefni fyrir þá sem gefa sig út fyrir að vera annt um lýðheilsumál, þ.e. að hverfa frá yfirlýstri stefnu einokunarverslunarinnar um ,,aukið aðgengi”, segir Arnar í grein sem birtist á visir.is í dag. 

,,Landlæknisembættið telur að allt sem auki aðgengi valdi auknum ófarnaði. Það vekur því nokkra furðu að stofnunin hefur aldrei gert athugasemdir við stefnu ÁTVR um ,,aukið aðgengi” hvort heldur er í orði eða á búðarborði – nú eða þegar ÁTVR opnaði sína eigin netverslun! Staðreynd málsins er að það eina sem flokka mætti sem skert aðgengi er aðgengi fjölmiðla að forstjóra stofnunarinnar sem ekki treystir sér til að koma fram.”

Arnar spyr hvort það sé virkilega hlutverk hins opinbera að skerða aðgengi fullveðja einstaklinga að vöru sem stjórnmálamenn skilgreina sem matvæli?

,,Líklega eru allir sammála um að rétt sé að skerða aðgengi ungmenna að áfengi og því hlýtur að mega spyrja hvernig til hafi tekist hjá einokunarversluninni. Samkvæmt eigin ,,hulduheimsóknum” mætti ætla að eitt af hverjum 5 ungmennum sé ekki spurt um skilríki. Enginn sleppur hins vegar í gegnum hið stafræna auðkennisferli í netverslun.”

Landlæknir hefur metið að íslenskar netverslanir einkaaðila muni auka hættuna á ,,skyndikaupum” en Arnar segir spurninguna um ,,af hverju” megi auðvitað skeyta aftan við allar fullyrðingarnar. Hann segir Landlæknisembættið skilja auðvitað ekki hvaða kröfur séu gerðar til vísindalegra vinnubragða og gagnrýninnar hugsunar.

,,Álit stofnunarinnar eru einfaldlega byggð á tilfinningum og ályktunum,” segir Arnar.

,,Á hverju ári niðurgreiða skattgreiðendur áfengisdreifingu í gegnum ÁTVR með tóbaksgjaldi sem annars ætti að renna í ríkissjóð. Það kemur því ekki á óvart að Félag hilluplásshafa (Félag atvinnurekenda) skuli benda á ótal atriði gegn því að almenningur á Íslandi geti notið lægra vöruverðs samfara frjálsri samkeppni. Af kostulegri mótrökum má nefna að frelsið sé ótækt ef hilluplásshafarnir fá ekki afléttingu á auglýsingabanni (sem þeir þó iðulega brjóta) auk þess sem stórlega muni draga úr viðskiptum við einokunarverslunina. Af hverju er auðvitað ekki rökstutt en félagsmenn hafa sjálfsagt ekki mikið þurft að velta fyrir sér hugtökum á borð við verð, gæði og þjónustu,” segir Arnar Sigurðsson í greini sinni á visir.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum

Par á Austurlandi ákært fyrir að halda dreng nauðugum
Fréttir
Í gær

Dómur þyngdur yfir Ásgeiri Þór fyrir jólaskotárásina á Hvaleyrarholti – Skaut sex skotum að 9 ára stúlku og föður hennar

Dómur þyngdur yfir Ásgeiri Þór fyrir jólaskotárásina á Hvaleyrarholti – Skaut sex skotum að 9 ára stúlku og föður hennar
Fréttir
Í gær

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“
Fréttir
Í gær

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“