Það var úkraínski miðillinn Apostrof tv sem birti viðtalið á YouTuberás sinni þann 18. mars 2019. Viðtalið hefur nú vakið mikla athygli því óhætt er að segja að Arestovytj hafi verið sannspár og það í smáatriðum um innrás Rússa í Úkraínu. Hann er ráðgjafi Zelenskyy forseta.
Í viðtalinu var Arestovytj spurður hvað myndi gerast ef Úkraína vildi ganga í NATO en úkraínska ríkisstjórnin hefur margoft lýst því yfir að það vilji hún. Hann var spurður hvort það myndi verða til að binda enda á átökin í austurhluta landsins þar sem aðskilnaðarsinnar og Rússar hafa barist gegn úkraínska hernum síðan 2014.
„Nei, það mun ekki binda enda á stríðið (í austurhluta Úkraínu, innsk. blaðamanns). Það mun þvert á móti verða til þess að Rússar grípa til hernaðaraðgerða gegn Úkraínu. Þeir vilja eyðileggja okkur og rústa Úkraínu svo NATO hafi ekki áhuga á aðild okkar,“ svaraði hann.
Þegar hann var spurður til hvaða aðgerða Rússar gætu gripið í stríði sagðist hann reikna með loftárásum og árásum frá rússneskum hersveitum sem væru við landamæri ríkjanna.
Hann sagðist einnig reikna með að Rússar myndu sitja um Kyiv og að reynt yrði að umkringja úkraínskar hersveitir í austurhluta landsins. Hann sagði að Rússar myndu ráðast inn í Úkraínu frá Krímskaga og taka svæðið við Kakhovske á sitt vald en þannig geta þeir tryggt íbúum á Krímskaga aðgang að vatni.
Allt hefur þetta gengið eftir.
Hann sagði einnig að rússneskar hersveitir myndu ráðast á og inn í Úkraínu frá Hvíta-Rússlandi. Það hefur einnig gengið eftir.
Hann sagðist einnig reikna með að Rússar myndu reyna að stofna nýtt „alþýðulýðveldi“ en það hefur ekki gengið upp því mótspyrna Úkraínumanna hefur verið mjög mikil og sókn rússneska hersins hefur því ekki gengið eins og áætlanir gerðu ráð fyrir.
Þegar hann var spurður hvenær hann teldi líklegast að Rússar myndu ráðast á Úkraínu sagði hann: „2020-2022 er mesta hættan á því.“
Hann sagði að það væri „99,9% öruggt“ að til stórs stríðs kæmi við Rússland ef Úkraínu vildi ganga í NATO: „Ef við göngum ekki í NATO munu Rússar samt sem áður reyna að leggja Úkraínu undir sig á næstu 10-12 árum. Við erum á ákveðnum krossgötum.“
Þegar hann var spurður hvorn kostinn hann myndi frekar vilja var svarið: „Að sjálfsögðu stórt stríð við Rússland og að síðan fáum við aðild að NATO eftir að hafa sigrað Rússland.“