Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur vannst ekki tími til þess á föstudag að skoða mál þar sem rusl hafði safnast upp á lóð við Flókagötu 5. Heilbrigðisfulltrúi segir í svari til DV að málið hafi verið kannað í gærmorgun og þá hafi allir pokar verið farnir.
DV sagði frá málinu á föstudag en þar kom fram að hvers kyns rusl og úrgangur hefði endurtekið safnast upp við húsið síðustu misseri. Þá hafi nágrannar kvartað endurtekið til heilbrigðiseftirlitsins, til Reykjavíkurborgar og til lögreglunnar án þess að það bæri árangur.
Nú er síðan aftur komið rusl á lóðina, í þetta skiptið er til dæmis um að ræða gamlan sófa, spýtnabrak og gamlan stól.
Þá kom fram að á föstudag hafi ruslapokar verið um alla lóð en síðan hafi einhver safnað þeim saman í stærri poka og sett út á stétt.
Í Facebookhópi íbúa í Norðurmýri sögðu margir að þetta kæmi ítrekað fyrir á þessari lóð og einn nágranninn hafði séð bæði rottur og máva sem sæktu í matarleifar í ruslinu.
DV spurði fulltrúa heilbrigðiseftirlits borgarinnar hvað hafi verið gert í málinu og hvort sektum hafi verið beitt. Í fyrri frétt DV var talað um að þarna væri rekið gistiheimili, og er húsnæðið skráð sem slíkt hjá Þjóðskrá, en samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðiseftirlitinu er þar ekki lengur gistiheimili heldur sé húsið allt í útleigu.
„Heilbrigðiseftirlitið getur beitt dagsektum ef ekki er farið að kröfum þess. Heilbrigðiseftirlitinu ber ávallt að beita vægasta úrræði hverju sinni og vægasta úrræði er að gera kröfur um úrbætur og veita hæfilegan frest til að verða við kröfunni. Sé kröfunni ekki sinnt er hún ítrekuð og aftur veittur frestur. Þannig getur liðið langur tími frá fyrstu kröfum þar til mál kemst á það stig að beiting dagsekta komi til álita,“ segir ennfremur í svari heilbrigðiseftirlitsins.
Rottur og mávar sækja í rusl sem safnast endurtekið upp við gistiheimili á Flókagötu – „Hryllingur“