fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

Blái herinn svarar Kristjáni og hótar meiðyrðamáli

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 22. febrúar 2022 16:00

Kristján Hreinsson (t.v.) og Tómas J Knútsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarin misseri hefur Kristján Hreinsson rithöfundur birt harðorðar greinar um umhverfisverndarsamtökin Bláa herinn og stofnanda þeirra, Tómas J. Knútsson. Hefur Kristján sakað Tómas um að eigna sér heiður af verkum annarra, þiggja milljóna styrki fyrir verkefni sem hann inni ekki af hendi og birta ekki ársreikninga Bláa hersins.

Grein sem Kristján birti 15. febrúar í Fréttablaðinu virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá Bláa hernum því greininni er svarað í Fréttablaðinu í dag og ýjað að væntanlegri málsókn í lokin. Í grein sinni amaðist Kristján við nýveittum 7.500.000 kr. styrk til handa Bláa hernum og sagði meðal annars:

„Í tveimur blaðagreinum á síðasta ári benti ég á það spillingarafl sem Blái herinn er. Ég hef sýnt og sannað að þar er ekki á ferðinni neinn her, heldur einn hermaður sem fær helling af peningum úr vösum skattgreiðenda fyrir að gera ekkert nema skreyta sig stolnum fjöðrum. Þetta hef ég sýnt og sannað með svo óyggjandi hætti að eigandi Bláa hersins hefur ekki mótmælt einu orði af því sem í greinum mínum kemur fram.“ 

Telur Kristján styrkinn bera vitni um spillingu:

„Núna er staðreyndin sú að bláa höndin ætlar að veita Bláa hernum 7.500.000 krónur í styrk. Sjö og hálf milljón fer frá sjálfstæðismanni til Bláa hersins og skattgreiðendur borga. Ég gæti skilið þennan vitleysisgang ef Blái herinn hefði gert eitthvað til að verðskulda sjö og hálfa milljón í styrk. Staðreyndin er hins vegar sú að þessi svokallaði her hefur ekkert unnið sem vert er að styrkja. Engu að síður er mokað peningum í mann sem laug til sín fálkaorðu með því að þykjast vera æðislega duglegur og með því að birta af sér myndir þar sem hann er í fjöruferð með forseta Íslands. Þetta er ekkert grín.“

Kristján ber Bláa hernum annars vegar á brýn að skila ekki ársreikningi og hins vegar að vinna ekki þau verkefni sem hann fær styrk af almannafé til að vinna.

Sjá einnig: Kristján segir Tómas fá milljóna styrki í verkefni sem aldrei eru unnin

Í grein Bláa hersins í Fréttablaðinu í dag segir:

„Undan­farið misseri hefur Kristján Hreins­son birt þrjár greinar í Frétta­blaðinu þar sem hann hefur sakað Bláa herinn og þá sem að honum standa um lygar, spillingu, lög­brot og ó­heiðar­leg vinnu­brögð. Stjórn og stofnandi Bláa hersins hafa hingað til ekki talið þessi skrif svara­verð þar sem greinarnar dæma sig sjálfar. En eftir síðustu grein sem birtist í Frétta­blaðinu 15. febrúar síðast­liðinn og ber titilinn Blái herinn og bláa höndin, teljum við okkur knúin til að svara þeim á­sökunum og ó­sannindum sem Kristján leggur fram.“

Er síðan bent á að á starfstíma Bláa hersins hafi yfir 200 kílómetrar af strandlengju verið hreinsaðir og 10 þúsund sjálfboðaliðum leiðbeint af hálfu samtakanna:

„Blái herinn hefur starfað síðan 1995 og varð form­lega frjáls fé­laga­sam­tök 1998. Hann var stofnaður af Tómasi Knúts­syni til að standa að strand­hreinsunum kringum Ís­land til að sporna við plast­mengun í hafi. Á þeim 27 árum sem Blái herinn hefur verið starf­ræktur hefur Tómas leitt og leið­beint yfir 10 þúsund sjálf­boða­liðum á­samt fyrir­tækjum, skólum og sam­tökum í bar­áttunni við plast­mengun í hafi. Þá hafa ríf­lega 200 kíló­metrar strand­lengju verið hreinsaðir og safnað vel á annað þúsund tonnum af plasti, veiðar­færum og öðru rusli. Allt efni sem safnað hefur verið í fjöru­hreinsunum hefur farið í viður­kenndar mót­töku­stöðvar um land allt.“

Sakaður um að ljúga til sín fálkaorðu

Blái herinn fer yfir ávirðingar Kristjáns og hafnar þeim. Telja samtökin ásakanir Kristjáns um að Tómas hafi logið til sín fálkaorðu vera mjög alvarlegar:

„Blái herinn hefur starfað síðan 1995 og varð form­lega frjáls fé­laga­sam­tök 1998. Hann var stofnaður af Tómasi Knúts­syni til að standa að strand­hreinsunum kringum Ís­land til að sporna við plast­mengun í hafi. Á þeim 27 árum sem Blái herinn hefur verið starf­ræktur hefur Tómas leitt og leið­beint yfir 10 þúsund sjálf­boða­liðum á­samt fyrir­tækjum, skólum og sam­tökum í bar­áttunni við plast­mengun í hafi. Þá hafa ríf­lega 200 kíló­metrar strand­lengju verið hreinsaðir og safnað vel á annað þúsund tonnum af plasti, veiðar­færum og öðru rusli. Allt efni sem safnað hefur verið í fjöru­hreinsunum hefur farið í viður­kenndar mót­töku­stöðvar um land allt.“

Í greininni segir að Blái herinn hafi unnið þrekvirki á sviði umhverfsiverndar allt frá stofnun. Er Kristján sakaður um ærumeiðingar og munu Blái herinn og Tómas, stofnandi hans, leita réttar síns í málinu:

„Blái herinn hefur unnið þrek­virki á sviði um­hverfis­verndar frá stofnun og allt sem Blái herinn gerir er unnið fyrir opnum tjöldum. Bendir stjórn Bláa hersins á að árs­skýrsla Bláa hersins er öllum að­gengi­leg á heima­síðu hans og hefur m.a. verið send um­hverfis­ráðu­neytinu ár hvert. Blái herinn hefur á­vallt verið rekinn með hags­muni um­hverfisins að leiðar­ljósi og stjórnin harmar að ó­eigin­gjarnt starf Tómasar sé dregið í efa. Stjórn Bláa hersins er ekki ljóst hvað Kristjáni Hreins­syni gengur til með sínum skrifum en skýrt er að stjórn Bláa hersins og Tómas Knúts­son munu leita réttar síns varðandi þau æru­meiðandi um­mæli sem Kristján Hreins­son hefur birt gagn­vart Tómasi.“

Sjá grein Bláa hersins í Fréttablaðinu

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag