fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Fréttir

Ekið á rafskútu – Ökumennirnir í vímu

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 3. september 2021 05:32

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 23.44 í gærkvöldi varð umferðarslys á gatnamótum í miðborginni. Bifreið var ekið á rafskútu og endaði ökumaður hennar á framrúðu bifreiðarinnar og farþegi á rafskútunni féll í götuna. Ökumaður rafskútunnar var fluttur með sjúkrabifreið á bráðadeild. Ökumaður bifreiðarinnar og farþegi rafskútunnar meiddust ekki. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna. Ökumaður rafskútunnar er grunaður um ölvun við akstur.

Á ellefta tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í geymslur í fjölbýlishúsi í Garðabæ. Brotist hafði verið inn í þrjár geymslur og verðmætum stolið úr einni.

Á þriðja tímanum í nótt var maður handtekinn í Kópavogi en hann hafði farið inn um ólæstar dyr á íbúðarhúsi og stolið yfirhöfn og síma.  Maðurinn var vistaður í fangageymslu og þýfinu komið aftur til eiganda.

Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum
Nova flytur á Broadway
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Þórshöfn – Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás

Sauð upp úr á Þórshöfn – Kona ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás
Fréttir
Í gær

Halldór vill að lögreglan rannsaki betur andlát systur hans – „Því þetta er mjög óþægilegt“

Halldór vill að lögreglan rannsaki betur andlát systur hans – „Því þetta er mjög óþægilegt“
Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann

Ákærður fyrir ofbeldi gegn starfsfólki félagsþjónustunnar á Dalvík – Frelsissvipti starfsmann
Fréttir
Í gær

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“
Fréttir
Í gær

Starfsmaður ríkissaksóknara sakaður um húsbrot, eignaspjöll og þjófnað

Starfsmaður ríkissaksóknara sakaður um húsbrot, eignaspjöll og þjófnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“