fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Fréttir

Nýtt húsráð sagt reynast vel í baráttunni gegn lúsmý – „Ekkert nýtt bit daginn eftir“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 6. ágúst 2021 17:22

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baráttan við lúsmý hér á landi í sumar hefur verið blóðug og hafa margir lent illa í bandsettri flugunni. Ljóst er að fleiri þúsund Íslendingar glíma við vandamál vegna lúsmýsins en stofnaður hefur verið Facebook-hópurinn Lúsmý á Íslandi, hópurinn telur rúmlega 8 þúsund meðlimi.

Í hópnum deila Íslendingar ýmis konar ráðum og leiðbeiningum, hvort sem það er til að koma í veg fyrir bit eða til að lágmarka sársauka þeirra sem hafa verið bitin. Til að mynda er mælt með því að fólk sjóði vatn og setji teskeið í heitt vatnið og svo á bitin svo þau lagist. „Hefur algjörlega bjargað mér,“ segir kona nokkur um það húsráð og önnur tekur undir.

Þá segir fólk frá hryllingssögum, eins og einn sem segist hafa flúið sumarbústaðinn sinn vegna fjölda smita eftir lúsmýið.

Ein kona virðist þó vera komin með lausn við óværunni. „Við fjölskyldan erum öll útbitin af lúsmýinu og hef prófað allskonar húsráð sem virka mis illa…,“ segir konan en svo prófaði hún nýtt húsráð sem virkaði nokkuð ágætlega. Húsráðið snýst um að setja hvítlauksolíu við opinn glugga.

„Í gær setti ég skál með hvítlauksolíu við opinn glugga (logn úti) og ekkert nýtt bit daginn eftir. Nokkrar höfðu drukknað í olíunni. Hafið þið prófað þetta?“ segir konan. „Nei, þess virði að prófa. Mér skilst að edik í skál geri sama gagn en ekki búin að prófa,“ segir önnur kona í athugasemd. „Athyglisvert,“ segir svo maður nokkur.

Sjá einnig: Nasaflaututónlistarmaðurinn Nasarus gefur út lag um lúsmý:„Lúsmý hér, lúsmý þar, lúsmý alls staðar“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fyrrum kærasti Öldu reyndi að ræna henni – „Ég henti mér út úr bíln­um“

Fyrrum kærasti Öldu reyndi að ræna henni – „Ég henti mér út úr bíln­um“
Fréttir
Í gær

Segir tafir á Hvammsvirkjun ekkert hafa með náttúruvernd að gera heldur lagaflækjur og mistök

Segir tafir á Hvammsvirkjun ekkert hafa með náttúruvernd að gera heldur lagaflækjur og mistök
Fréttir
Í gær

Riddarar kærleikans á kærleikshringferð um landið

Riddarar kærleikans á kærleikshringferð um landið
Fréttir
Í gær

„Þessar barnadýnur eru þá taldar hættulegar eða ekki æskilegt að börn sofi á þeim. Sama með þessi plastleikföng sem eru mjúk“

„Þessar barnadýnur eru þá taldar hættulegar eða ekki æskilegt að börn sofi á þeim. Sama með þessi plastleikföng sem eru mjúk“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja tvo launmorðingja hafa verið skotna til bana í morgun

Segja tvo launmorðingja hafa verið skotna til bana í morgun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Peter Jackson lykilmaður í að endurlífga risastóran útdauðan fugl – „Þetta yrði mjög hættulegt dýr“

Peter Jackson lykilmaður í að endurlífga risastóran útdauðan fugl – „Þetta yrði mjög hættulegt dýr“