fbpx
Miðvikudagur 04.febrúar 2026
Fréttir

Tveir á bráðamóttöku eftir rafskútuslys

Bjarki Sigurðsson
Laugardaginn 15. maí 2021 09:30

Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir aðilar féllu af rafskútu í gærkvöldi og hlutu þeir báðir skurð við fallið. Fyrra atvikið átti sér stað í Fossvogi rétt fyrir klukkan ellefu en maðurinn hlaut skurð á nef og blæddi mikið út honum samkvæmt dagbók lögreglu. Hann var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á bráðadeild. Hitt atvikið var klukkan 20 mínútur yfir þrjú en sá aðili fékk skurð á höku og áverka á úlnlið. Hann var einnig fluttur með sjúkrabifreið á bráðadeild en báðir aðilar voru á leigu hjólum.

Tveir 17 ára ökumenn voru stöðvaðir eftir hraðakstur. Einn mældist á 160 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 km/klst. Hinn var á 146 km hraða þar sem hámarkshraði var einnig 80 km/klst. Forráðamönnum þeirra beggja var tilkynnt um málið og tilkynning send til Barnaverndar.

Þá voru nokkur tilvik um ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Kannað var með sóttvarnir og leyfi á 39 veitingastöðum í borginni. Fjórir staðir voru áminntir þar sem tveggja metra reglan var ekki virt, bókhald yfir viðskiptavini ekki skráð eða enginn listi yfir starfsmenn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Andlátið í Vestmannaeyjum – Dómari hafnar gæsluvarðhaldskröfu og starfsmönnunum sleppt

Andlátið í Vestmannaeyjum – Dómari hafnar gæsluvarðhaldskröfu og starfsmönnunum sleppt
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ásthildur Lóa ómyrk í máli: Hvert heimili fengi 700 þúsund krónur ef hagnaði bankanna yrði skipt jafnt á milli þeirra

Ásthildur Lóa ómyrk í máli: Hvert heimili fengi 700 þúsund krónur ef hagnaði bankanna yrði skipt jafnt á milli þeirra
Fréttir
Í gær

Fimmtán fóru veikir heim eftir að hafa borðað grænmetisbollur

Fimmtán fóru veikir heim eftir að hafa borðað grænmetisbollur
Fréttir
Í gær

Hvítblæðissjúklingur varð fyrir eitrun í lyfjameðferð en fékk ekki að tilkynna það til landlæknis

Hvítblæðissjúklingur varð fyrir eitrun í lyfjameðferð en fékk ekki að tilkynna það til landlæknis
Fréttir
Í gær

Einn þekktasti raðmorðingi Bretlands dreginn fyrir dóm að nýju – Gekkst í fyrsta skipti við myrkraverkum sínum

Einn þekktasti raðmorðingi Bretlands dreginn fyrir dóm að nýju – Gekkst í fyrsta skipti við myrkraverkum sínum
Fréttir
Í gær

Tveir handteknir í tengslum við andlát á sjúkrahúsi í Vestmannaeyjum

Tveir handteknir í tengslum við andlát á sjúkrahúsi í Vestmannaeyjum
Fréttir
Í gær

Lekavandamál í nýlegu húsi Hafró

Lekavandamál í nýlegu húsi Hafró
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenskur leigubílstjóri furðulostinn yfir því að vera í Epstein-skjölunum: „Ég man ekkert eftir því“

Íslenskur leigubílstjóri furðulostinn yfir því að vera í Epstein-skjölunum: „Ég man ekkert eftir því“