fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Fréttir

Fyrstu útihátíð sumarsins slaufað – Hvað verður um Þjóðhátíð?

Bjarki Sigurðsson
Fimmtudaginn 15. apríl 2021 10:28

Frá Fiskideginum mikla.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tilkynnt var í dag að Fiskidagurinn mikli á Dalvík yrði ekki haldinn hátíðlegur í sumar. Þetta kom fram í tilkynningu frá stjórn dagsins og er kórónuveiran sökudólgurinn.

„Fiskidagurinn mikli er þannig uppbyggður að við getum aldrei stjórnað fjölda þeirra gesta sem sækja okkur heim, við getum ekki skipt upp í hólf, ekki haft fjarlægðarreglur, og svo framvegis. Fiskidagurinn mikli sem er matarhátíð er ekki haldinn fyrr en grímunum hefur verið sleppt og ótakmarkaður gestafjöldi leyfður og að gestir geti knúsast áhyggjulaust að hætti Fiskidagsins mikla svo að fátt eitt sé nefnt. Það kostar mikla vinnu að skipuleggja svona stóra hátíð og óvissan er of mikil til þess að leggja af stað í þetta stóra verkefni. Við tökum enga áhættu og sýnum ábyrgð í verki, við teljum að það verði ekki kominn tími til að safna saman 30.000 manns eftir 3 mánuði,“ segir í tilkynningunni en í dag er akkúrat ár síðan tilkynnt var um frestun hátíðarinnar 2020.

Hátíðin hefði fagnað 20 ára afmæli í fyrra en haldið verður upp á það árið 2022 í staðinn.

Við þetta vakna spurningar hvort aðrar útihátíðir sem hafa verið fastur hluti af lífi Íslendinga til margra ára verði haldnar eður ei. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er einn vinsælasti viðburður ársins hjá landsmönnum en enn er allt óvíst með hana. Sala á hátíðina er ekki hafin en hún er að jafnaði hafin á þessum tíma árs. Margir þeirra sem keyptu miða í fyrra völdu að færa hann yfir á hátíðina í ár eftir að henni var frestað út af Covid-19.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Heilahimnubólga breiðist út á Englandi: „Veikindin tóku hana frá okkur á 12 tímum“

Heilahimnubólga breiðist út á Englandi: „Veikindin tóku hana frá okkur á 12 tímum“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Magnús Hlynur kominn á RÚV

Magnús Hlynur kominn á RÚV
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr í Krónunni þegar öryggisvörður reyndi að stöðva samlokuþjóf

Sauð upp úr í Krónunni þegar öryggisvörður reyndi að stöðva samlokuþjóf
Fréttir
Í gær

Bak við tjöldin hjá Bergrúnu Írisi

Bak við tjöldin hjá Bergrúnu Írisi
Fréttir
Í gær

Skólamál Reykjanesbæjar langt fram úr fjárhagsáætlun

Skólamál Reykjanesbæjar langt fram úr fjárhagsáætlun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Telja að Landsréttur hafi átt að meta það hvort 13 stúlka hefði þroska til að samþykkja kynlíf með 21 árs manni

Telja að Landsréttur hafi átt að meta það hvort 13 stúlka hefði þroska til að samþykkja kynlíf með 21 árs manni