fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Fréttir

Alræmdur ruslasafnari á Vestfjörðum bætir enn í safn sitt – Dró ónýtt skip úr snjóflóðinu upp á landið sitt

Heimir Hannesson
Laugardaginn 13. mars 2021 18:30

mynd/Heimir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Báturinn Eiður sem fórst í snjóflóðinu á Flateyri aðfaranótt 15. janúar 2020 var um síðustu helgi dreginn upp á strönd á landi Garðsstaða í Ísafjarðardjúpi þar sem til stendur að rífa hann. Engin starfsleyfi liggja fyrir aðgerðinni þó Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða vissi af henni. Landvernd skoðar málið og Umhverfisstofnun segist hafa vald til að kæra.

Sex bátar voru í höfninni á Flateyri er flóðið féll á varnarveggi sem reistir voru fyrir ofan bæinn eftir flóðin mannskæðu undir lok síðustu aldar. Varnarveggirnir bægðu flóðinu frá bænum og leikur enginn vafi á því að manntjón hefði orðið án þeirra. Garðarnir náðu þó ekki yfir höfnina og varð altjón á flestum bátunum sem þar lágu fastir. Eiður var stærstur þeirra og reyndist heilmikil aðgerð að koma honum upp úr höfninni. Honum hvolfdi í flóðinu og maraði hann á floti í höfninni í um tvær vikur. Síðar meir tókst köfurum að koma böndum á hann, snúa honum við og sökkva honum. Þá gátu kafararnir loks hafist handa við að þétta hann til þess að hægt væri að dæla vatni úr honum og ná honum á flot. Kostnaðurinn við aðgerðirnar féll á tryggingafélag hvers báts fyrir sig, nema eins sem reyndist ótryggður.

Eiður var loks dreginn til Ísafjarðarhafnar þar sem hann lá bundinn við bryggju þar til um síðustu helgi.

Á hádegi laugardags 6. mars fylgdust Ísfirðingar svo með því er björgunarskipið Gísli Jóns dró Eið út Skutulsfjörð. Lá leiðin inn Djúpið og að landi Garðsstaða. Þar var sett lína í bátinn og hann dreginn með jarðgröfu upp á land þar sem stendur til að rífa hann.

Höfnin á Flateyri eftir snjóflóðið í janúar 2020. mynd/Haukur Sigurðsson

Þorbjörn á Garðsstöðum alræmdur safnari

Landeigendur á Garðsstöðum hafa legið undir gagnrýni undanfarin ár vegna fjölda bílhræja sem á jörðinni standa. Eigandi jarðarinnar, og bílhræjanna, segist stunda niðurrifsstarfsemi og partasölu. Í viðtali við Fréttablaðið árið 2019 var haft eftir ábúendum á Ögri, næsta bæ við Garðsstaði, að þeir áætluðu að um 650-700 bílhræ stæðu á jörðinni, auk mikils magns af öðru rusli.

Ábúendurnir á Ögri skrifuðu árið 2019 harðort bréf til ýmissa stofnana ríkis og sveitarfélaga, auk stjórnmálamanna þar sem þeir sökuðu Þorbjörn Steingrímsson, ábúanda á Garðsstöðum, um að hafa staðið að ólögmætri starfsemi.

Horft yfir bílhræjasafnið á Garðsstöðum. Mynd úr safni

Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun gildir reglugerð umhverfis- og auðlindaráðuneytis um endurvinnslu skipa og segir þar að starfsemi þar sem endurvinnsla skipa fer fram skuli vera starfsleyfisskyld. Í þeim tilfellum þar sem skipið er undir 500 brúttótonnum skal leyfisveitingin vera á hendi heilbrigðisnefnda sveitarfélaga.

DV kannaði hvort leyfi fyrir niðurrifi og endurvinnslu bátsins á landi Garðsstaða hefði verið gefið út og er skemmst frá því að segja, að svo er ekki.

Í skriflegu svari við fyrirspurn DV segir Anton Helgason frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða að engin starfsleyfi hafi verið gefin út „enn sem komið er“. Hann segir jafnframt að skoðað hafi verið að taka bátinn á land á Ísafirði en fyrir því hafi ekki verið áhugi. Anton segir að Eiður hafi verið of stór og þungur til þess að hægt væri að taka hann upp úr sjónum með krana og sé þess utan of stór til að hægt sé að koma honum í gegnum göngin. „Báturinn lá á hafsbotni um tíma og er því vel skolaður. Eins hefur Terra yfirfarið bátinn og var öllum spilliefnum dælt úr.“

Anton segir jafnframt að brotamálmsfyrirtækið Fura mun sinna niðurrifi bátsins á landi Garðsstaða og flytja leifarnar í endurvinnslu.

Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi, sagðist ekkert kannast við málið.

Bílhræjasafnið á Garðsstöðum er vel sýnileg loftmyndum af svæðinu. Bærinn vinstra megin við veginn er Ögur. Skjáskot/map.is

Lítið eftirlit með eftirlitinu

DV sendi enn fremur fyrirspurn á björgunarsveitina á Ísafirði, sem sagði að þessi notkun á björgunarskipi væri hluti af reglubundinni tekjuöflun björgunarsveitarinnar. „Þetta var fjáröflunarverkefni og það koma af og til slík verkefni og er þá samið um þjónustugjald fyrir fram. Rekstur björgunarbátasjóða sem okkar, þar sem á bilinu 15-30 útköll berast á ári, er fjárfrekur og því eru fjáröflunarverkefni yfirleitt kærkomin, auk þess sem slík verkefni geta verið góð æfing fyrir áhöfn skipsins,“ sagði Gauti Geirsson, formaður björgunarbátasjóðsins á Ísafirði. Hann kvaðst ekki geta veitt DV upplýsingar um hver greiddi fyrir aðgerðina eða hvað drátturinn kostaði.

Í svari Friggjar Thorlacius, lögfræðings hjá sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar hjá Umhverfisstofnun, við fyrirspurn DV um viðurlög við brotum á áðurnefndri reglugerð, segir hún að heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna hafi eftirlit með atvinnurekstri sem þessum. „Þau þvingunarúrræði sem heilbrigðisnefnd hefur í þessu tilviki, til að koma á reglufylgni, eru áminning, dagsektir og verk á kostnað aðila og stöðvun til bráðabirgða.“ Það er því sama heilbrigðisnefnd sem vissi af ætluðu niðurrifi skipsins á landi Garðsstaða og taldi ekki þörf á að veita fyrir því leyfi sem á að hafa eftirlit með því að leyfi séu veitt og refsa þeim sem fara af stað í leyfisskylda starfsemi án tilskilinna leyfa.

Umhverfisstofnun er þó heimilt að beita stjórnvaldssektum „í vissum tilfellum“, sem og að kæra brot á lögunum og reglugerðum til lögreglu, að því er fram kemur í svari Friggjar.

DV spurði Umhverfisstofnun að því hvort niðurrif Eiðs á landi Garðsstaða í leyfisleysi væri til skoðunar og hvort stofnunin hygðist kæra framkvæmdina, en svör höfðu ekki borist þegar blaðið fór í prentun. Svörin verða birt á vefnum DV.is ef og þegar þau berast.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gangstígur lagður alveg upp við Árskóga í óþökk íbúa – „Hafa aftur og aftur reynt að fá áheyrn“

Gangstígur lagður alveg upp við Árskóga í óþökk íbúa – „Hafa aftur og aftur reynt að fá áheyrn“
Fréttir
Í gær

Deila vegna sölu fáksins Dags frá Kjarnholtum fyrir dómstóla – Hörð orðarimma í hesthúsi í Víðidal

Deila vegna sölu fáksins Dags frá Kjarnholtum fyrir dómstóla – Hörð orðarimma í hesthúsi í Víðidal
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar hennar voru myrtir – Eftir ræðuna í jarðarför þeirra varð hún efst á lista yfir grunaða

Foreldrar hennar voru myrtir – Eftir ræðuna í jarðarför þeirra varð hún efst á lista yfir grunaða
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Magnað afrek hjá Karlottu Ósk – lauk 500+ kílómetra hlaupi fyrst íslenskra kvenna

Magnað afrek hjá Karlottu Ósk – lauk 500+ kílómetra hlaupi fyrst íslenskra kvenna