fbpx
Miðvikudagur 26.nóvember 2025
Fréttir

Svandís kynnir nýjar Covid reglur – Verulegar tilslakanir frá og með morgundeginum – „Þetta er mikill gleðidagur“

Heimir Hannesson
Þriðjudaginn 23. febrúar 2021 11:33

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fundur ríkisstjórnarinnar hófst í Ráðherrabústaðnum klukkan hálf tíu í morgun. Meðal umræðuefna var minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis um tillögur að afléttingu samkomutakmarkana.

Lítið hafði verið gefið upp um efnislegt innihald tillagna Þórólfs annað en að hann gerði ráð fyrir því að reglur um samkomutakmarkanir innanlands taki gildi um miðja þessa viku.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ræddi við fréttamenn eftir fundinn og sagði að fjöldatakmarkanir í skólum yrðu  150 undir nýrri reglugerð. Með þessu væri verið að rýmka reglurnar nokkuð verulega. „Verið er að rýmka reglurnar, meira staðnám á háskólastigi, meira félagslíf í framhaldsskólum. Ég er mjög ánægð með hvernig þetta hefur tekist. Nú eru háskólarnir að opna aftur. Þetta er mikill gleðidagur,“ sagði Lilja.

Lilja segir að reglugerðin verði kynnt nánar síðar í dag og birt í heild sinni á vefsíðu stjórnarráðsins eins og hefur verið gert hingað til, en sagði þó að um væri að ræða 150 manna takmörk, sem fyrr sagði. Ef ekki verður hægt að uppfylla eins metra fjarlægðarreglu mun grímuskylda áfram gilda í skólum.

Nýju reglurnar um sóttvarnaráðstafanir í skólum munu taka gildi á morgun.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði þá að breytingarnar á almennum reglum munu strax taka gildi á morgun.

Þær fela í sér að 20 manna hámarksfjöldi fer í 50. Tveggja metra reglan verður áfram meginregla og grímuskylda viðhöfð.

Hámarksfjöldi á „tiltekinni starfsemi“ verður 200 eftir morgundaginn. Er þar átt við sviðslistir, íþróttaviðburðir, söfn og því um líkt. Þar verður þó að vera hægt að tryggja að fólk sé í sætum, segir Svandís, og að einn metri sé á milli óskyldra aðila. „Þá verður að vera hægt að halda til haga upplýsingum um hvern og einn gest, til þess að tryggja smitrakningu ef til þess kemur.“

Þá sagði Svandís að leyfilegur opnunartími kráa, skemmti- og veitingastaða verði lengdur um eina klukkustund. Því má frá og með morgundeginum hleypa inn fólki til klukkan 22:00 á slíka staði en rýma verður staðinn klukkan 23:00.

Þá mega sundlaugar og líkamsræktarstöðvar hleypa inn allt að 75% af leyfðum heildarfjölda sínum. Hingað til hefur það verið 50%.

Reglugerð þessi gildir í þrjár vikur frá og með morgundeginum.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Rúnar fagnar tímamótum í janúar

Rúnar fagnar tímamótum í janúar
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ungir Miðflokksmenn hæðast að SUS fyrir að saga bíl í sundur – „Flott myndband, það er bara eitt vandamál“

Ungir Miðflokksmenn hæðast að SUS fyrir að saga bíl í sundur – „Flott myndband, það er bara eitt vandamál“
Fréttir
Í gær

Bóndi fékk háa sekt – Vildi ekki segja hvenær hann aflífaði kind sem enn er skráð lifandi

Bóndi fékk háa sekt – Vildi ekki segja hvenær hann aflífaði kind sem enn er skráð lifandi
Fréttir
Í gær

Ekki gerð refsing fyrir að klæmast við unga stúlku í Strætó

Ekki gerð refsing fyrir að klæmast við unga stúlku í Strætó
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pétur hættir sem forstjóri Reykjalundar

Pétur hættir sem forstjóri Reykjalundar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir óvini Þórdísar Kolbrúnar haldna þrælslund

Segir óvini Þórdísar Kolbrúnar haldna þrælslund