fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Af 38 smituðum skólabörnum í Reykjavík eru 28 í Háteigsskóla – Einn starfsmaðurinn ekki bólusettur

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 20. október 2021 19:38

Háteigsskóli. Mynd úr safni/Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar hafa borist tilkynningar um að nú séu 38 grunnskólanemendur með staðfest Covid-smit. Þar af eru 28 barnanna í Háteigsskóla, 4 í Seljaskóla en aðrir eru stakir nemendur í öðrum grunnskólum í Reykjavík. Þrír starfsmenn Háteigsskóla eru með staðfest smit.

Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn DV til skóla- og frístundasviðs um smit í leik- og grunnskólum borgarinnar. Engar tilkynningar um börn eða starfsfólk leikskóla hafa borist þessa vikuna, hvorki vegna sóttkvíar né smitgátar.

Samkvæmt öruggum heimildum DV er einn þeirra starfsmanna við Háteigsskóla sem nú er með Covid óbólusettur. Arn­dís Stein­þórs­dóttir, skóla­stjóri Há­teigs­skóla, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.  Spurð um vinnureglur þegar kemur að óbólusettu starfsfólki skóla vísaði hún á Helga Grímsson, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs. Ekki náðist í Helga við vinnslu fréttarinnar.

220 grunnskólanemar í Reykjavík eru í sóttkví, samkvæmt því sem best er vitað. Segir í svari frá skóla- og frístundasviði að allmargir séu að fara í sýnatöku þessa dagana og þessi fjöldi breytist því nokkuð hratt.

Ekki liggja fyrir staðfestar tölur hjá Reykjavíkurborg um fjölda nemenda eða starfsmanna í smitgát þar sem útsetningardagur fyrir smiti er mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni.

Fréttablaðið greindi frá því í morgun að þrír árgangar í Háteigsskóla væru í sóttkví.

Arn­dís Stein­þórs­dóttir sagði þá í samtali við Fréttablaðið að þetta væru nemendur í fjórða, fimmta og sjötta bekk. Þá væru nemendur í fjórða og sjötta bekk að koma úr sóttkví í þessari viku en fimmti bekkur yrði væntanlega í sóttkví fram yfir vetrarfrí sem hefst á föstudag og er ekki aftur skóli fyrr en á miðvikudag hjá börnum í Reykjavík.

Þá ræddi Fréttablaðið við Helga Grímsson sem sagði mikið áhyggjuefni að stærsti hluti landsmanna í einangrun séu börn á aldrinum sex til tólf ára. Þá nefnir hann að frá septembermánuði hafi sjö sinnum verið farið í smitrakningu í Norðlingaskóla og mörg börn þar ítrekað þurft að fara í sóttkví.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ung móðir lenti í óhugnanlegri reynslu eftir fyllerí – „Af hverju get ég ekki hreyft fæturna?“

Ung móðir lenti í óhugnanlegri reynslu eftir fyllerí – „Af hverju get ég ekki hreyft fæturna?“
Fréttir
Í gær

Ferðamenn hundsuðu viðvaranir og gengu á ísnum í Kerinu – „Kannski gleypir Balroggurinn þá“

Ferðamenn hundsuðu viðvaranir og gengu á ísnum í Kerinu – „Kannski gleypir Balroggurinn þá“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fordómarnir flæða upp á yfirborðið hjá bandarískum þingmönnum

Fordómarnir flæða upp á yfirborðið hjá bandarískum þingmönnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn kallar eftir meira heimanámi – Segir það geta sameinað fjölskyldur

Þorsteinn kallar eftir meira heimanámi – Segir það geta sameinað fjölskyldur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fólk gapandi eftir að upplýst var um fund Miðflokks með öfgasamtökum – „Trúðarnir heimsóttu Trumpistan“

Fólk gapandi eftir að upplýst var um fund Miðflokks með öfgasamtökum – „Trúðarnir heimsóttu Trumpistan“