fbpx
Föstudagur 07.nóvember 2025
Fréttir

Héraðssaksóknari ákveður á næstu dögum hvort hann ákærir barnsmóður Aziz – Hefur ekki fengið að sjá börnin sín í meira en tvö ár

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 12. maí 2021 20:17

Samsett mynd DV. Aðsend mynd af Aziz og blaðaúrklippa frá handboltaferli hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í lok janúar ræddi DV við Abdelaziz Mihobi, öðru nafni Aziz, en hann er frá Alsír. Aziz er íslenskur ríkisborgari, fyrrverandi landsliðsmaður Alsír í handbolta, og kom hingað til lands á tíunda áratugnum og lék handbolta með Val við góðan orðstír.

Aziz kynntist pólskri konu á Íslandi. Bjuggu þau saman í um 12 ár og eru raunar enn löglega hjón. Aziz og pólska konan eignuðust tvö börn sem eru langt undir lögaldri í dag, og raunar langt undir 10 ára aldri. Aziz og konan ákváðu að skilja að skiptum. Skömmu eftir að þau hættu saman tók konan börnin með sér fyrirvaralaust til Póllands án þess að ræða við Aziz.

Samkvæmt upplýsingum frá lögmanni Aziz, Fróða Steingrímssyni, var þetta brottnám barnanna kært til lögreglu á grundvelli 193. greinar almennra hegningarlaga, en þar segir: „Hver, sem sviptir foreldra eða aðra rétta aðila valdi eða umsjá yfir barni, sem ósjálfráða er fyrir æsku sakir, eða stuðlar að því, að það komi sér undan slíku valdi eða umsjá, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 16 árum eða ævilangt.“

Sögð ekki ætla að hlýða úrskurðinum

Þann 8. desember síðastliðinn úrskurðaði áfrýjunardómstóll í Varsjá að konan skyldi fara með börnin aftur til Íslands. Felldi hann úr gildi úrskurð héraðsdóms þar í landi sem úrskurðaði móðurinni í vil. Hafði hún 14 daga til að fara eftir úrskurðinum en hún er enn í Póllandi með börnin.

Aziz fullyrðir í samtali við DV að konan ætli ekki að hlíta úrskurðinum: „Íslensk yfirvöld gera ekkert. Hún segir að hún muni ekki snúa til baka til Íslands og það muni þurfa að flytja hana með valdi. Með því að fara með börnin út, halda þeim í Póllandi og neita þeim um að tala við mig er hún að brjóta á rétti barnanna sem eru íslenskir ríkisborgarar. Hún er heldur engan veginn að uppfylla þarfir barnanna en hún býr í einu herbergi með þeim í Póllandi.“

Málið komið á borð héraðssaksóknara

Samkvæmt frétt mbl.is er rannsókn lögreglunnar á meintum brotum konunnar lokið en á næstunni mun héraðssaksóknari taka ákvörðun um hvort gefin verður út ákæra á hendur hinni pólsku barnsmóður Aziz.

Ef ákæra verður gef­in út þarf kon­an að koma til Íslands og svara til saka fyr­ir brott­nám barn­anna. Ef út­gáfa ákæru ber ekki ár­ang­ur er hægt að gefa hana út á er­lendri grundu, annaðhvort með evr­ópskri hand­töku­til­skip­un eða með því að birta kon­unni ákær­una í Póllandi.

Þessar upplýsingar koma fram í frétt mbl.is sem ræddi við Fróða Steingrímsson, lögmann Aziz.

„Það væri gott að sjá kröft­ugri viðbrögð frá ráðuneyt­un­um í ljósi þess að þetta eru tveir Íslend­ing­ar sem eru tekn­ir úr landi en ég vona að þau vinni þetta eft­ir bestu getu,“ seg­ir Fróði við mbl.is. Hann segir ekkert benda til þess að pólsk yfirvöld ætli að framfylgja úrskurði sínum þess efnis að konan eigi að fara með börnin til Íslands. Staðan fyrir Aziz, sem fær ekki að sjá börnin sín, er því mjög erfið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Lést á Hrunavegi eftir að hafa ekið á röngum vegarhelmingi á afskráðum jeppa

Lést á Hrunavegi eftir að hafa ekið á röngum vegarhelmingi á afskráðum jeppa
Fréttir
Í gær

Ákærður nauðgari ætlaði úr landi

Ákærður nauðgari ætlaði úr landi
Fréttir
Í gær

Sara Rós hlaut hvatningarverðlaun ADHD samtakanna

Sara Rós hlaut hvatningarverðlaun ADHD samtakanna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eltihrellir Lilju endaði á að drepa ættingja sinn: „Að fá það í fangið var mikið sjokk“

Eltihrellir Lilju endaði á að drepa ættingja sinn: „Að fá það í fangið var mikið sjokk“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mamdani verður borgarstjóri New York – Hélt eldræðu eftir sigurinn og skaut á Trump

Mamdani verður borgarstjóri New York – Hélt eldræðu eftir sigurinn og skaut á Trump