fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Fréttir

Snilldarráð sem einfalda heimilislífið – Pítsatrixið er snilld

Tobba Marinósdóttir
Mánudaginn 15. mars 2021 19:31

Mynd: Skjáskot The Kitchn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öll erum við að reyna að finna stystu og bestu leiðina að þeim verkefnum sem fyrir okkur eru lögð. Hér koma nokkrar góðar hugmyndir sem gætu auðveldað þér lífið.

ALLIR LISTAR Á EINUM STAÐ
To do er smáforrit sem getur svo sannarlega auðveldað fólki lífið. Forritið býður upp á að halda utan um hina ýmsu verkefnalista. Til dæmis geta hjón gert innkaupa-lista og deilt hvort með öðru svo að ef annar aðilinn fer í búðina þá getur hann tekið út af sameiginlega listanum um leið og sá sem er heima setur inn á hann. Hægt er að vera með marga aðskilda lista til dæmis eftir verslunum eða verkefnum.

SÆKJA PÍTSU-TRIXIÐ
Flestallir hafa sótt rjúkandi pítsu sem lá skáhallt í bílsætinu á leiðinni og áleggið rann út á hlið eða annað sem varð að vera á beinu undirlagi af ýmsum ástæðum. Það snarvirkar að vera með 0,5 lítra gosflösku í bílnum og setja hana innst í sætið til að ná flötu yfirborði. Þeir allra hörðustu kveikja á sætishitaranum og halda pítsunni volgri á leiðinni.

TÝNDUR SMÁHLUTUR
Ef þú týnir smáhlut á gólfinu eða missir niður perlur er sniðugt að setja nælonsokk utan um suguopið á ryksugunni. Týndi eyrnalokkurinn gæti skilað sér í sokkinn, nú eða perlurnar. Gættu þess bara að snúa stútnum upp þegar slökkt er á soginu.

ÞURRT LOFT
Ef loftið á heimilinu er mjög þurrt er gott að hafa alltaf vatn í tómum vösum í stofunni og jafnvel setja skál með vatni á ofn sé þess kostur. Það má einnig smella ilmdropum í vatnið sem fer á ofn-inn ef vill.Snilldarráð sem einfalda heimilislífið.

LLA LYKTANDI SKÓR
Settu 2 matskeiðar af matarsóda í gamla tusku eða ungbarnasokk og notaðu teygju til að loka fyrir. Klipptu endann burt ef þú notar tusku. Geymdu knippin í skónum í tvo daga eða lengur.

HEIMALESTUR BARNA
Góð vinkona og kennari benti mér eitt sinn á að það getur aðstoðað börn sem eru að byrja að læra að lesa að setja sér sín eigin markmið og verðlaun. Það má til dæmis gera með því að nota krukku sem barnið setur stein í eftir hvern heimalestur. Barnið ákveður þá sjálft hve mikið skuli lesa og hver umbunin sé. Til dæmis einn steinn fyrir hverja blaðsíðu. Svo þegar krukkan er orðin full fær barnið að velja sér afþreyingu eða verðlaun

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Alvarlegt slys við Hvítá

Alvarlegt slys við Hvítá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oscar sendur til Kólumbíu á þriðjudag – „Við vorum að fá þau hrikalegu skilaboð“

Oscar sendur til Kólumbíu á þriðjudag – „Við vorum að fá þau hrikalegu skilaboð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Frægir fjárfestu í Íslandsbanka

Frægir fjárfestu í Íslandsbanka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja Ásdísi ekki skilja stjórnskipulag bæjarins sem hún stýrir

Segja Ásdísi ekki skilja stjórnskipulag bæjarins sem hún stýrir