fbpx
Sunnudagur 03.ágúst 2025
Fréttir

Fréttir Stöðvar 2 framvegis aðeins fyrir áskrifendur

Heimir Hannesson
Mánudaginn 11. janúar 2021 11:51

mynd/aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fréttatími Stöðvar 2 verður frá og með 18. janúar í læstri dagskrá og aðeins aðgengilegur áskrifendum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stöð 2. Segir þar að Stöð 2 verði „hrein áskriftarstöð.“

Fréttatími Stöðvar 2 hefur verið opinn almenningi síðan stöðin var stofnuð fyrir 34 árum síðan og er því um býsna veigamikla breytingu á fjölmiðlaumhverfi Íslands að ræða. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2 segir í tilkynningunni breytinguna vera „sóknaraðgerð.“ „Með þessari aðgerð erum við að tryggja fréttastofuna enn frekar í sessi. Við erum þess fullviss að með stuðningi áskrifenda skapist forsendur til að standa vörð um öfluga fréttaþjónustu og framleiðslu innlends efnis.“

Í tilkynningunni segir jafnframt að sveigjanleiki í áskriftarmöguleikum verði aukinn samhliða þessari breytingu. Þá verður efni úr fréttatíma áfram aðgengilegt á fréttavef Vísis og í fréttum Bylgjunnar, að því er segir í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hafnar gæsluvarðhaldi yfir manni sem ók stolnum bíl um flugbrautirnar – Flúði lögreglu á ofsahraða með reipi um hálsinn

Hafnar gæsluvarðhaldi yfir manni sem ók stolnum bíl um flugbrautirnar – Flúði lögreglu á ofsahraða með reipi um hálsinn
Fréttir
Í gær

Ráðgjafi í innsta hring Biden átti að fá bónus ef hann yrði endurkjörinn – Mögulegur hvati til að hylma yfir veikindi forsetans

Ráðgjafi í innsta hring Biden átti að fá bónus ef hann yrði endurkjörinn – Mögulegur hvati til að hylma yfir veikindi forsetans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur mundi ekki heldur eftir skýrslunni hálfu ári eftir gerð hennar – „Ég veit ekkert um þetta“

Guðlaugur mundi ekki heldur eftir skýrslunni hálfu ári eftir gerð hennar – „Ég veit ekkert um þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Karlmaður og kona sakfelld: Fengu 6,3 milljónir inn á reikning fyrir mistök og skiluðu ekki fénu

Karlmaður og kona sakfelld: Fengu 6,3 milljónir inn á reikning fyrir mistök og skiluðu ekki fénu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamaður lést við Breiðamerkurjökul

Ferðamaður lést við Breiðamerkurjökul
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bjartsýnn fyrir Þjóðhátíð í Eyjum – „Hér er auðvitað allra veðra von en það verður gott partý“

Bjartsýnn fyrir Þjóðhátíð í Eyjum – „Hér er auðvitað allra veðra von en það verður gott partý“