Á gervihnattaöld eru flestir að fylgjast með, alltaf. Það getur því verið óheppilegt að láta van- hugsuð ummæli falla, en slíkt gerist eins og gengur, enda er enginn fullkominn. Hér eru nokkur eftirminnileg ummæli sem féllu á árinu, en mörg þeirra hittu engan veginn í mark.
„Ef einhvern tímann væri þörf fyrir löglega netverslun með áfengi.“
– Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Þessi ummæli lét dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, falla á Twitter og vísaði þar til þess að á tímum samkomubanns vegna COVID-19 væri þörf á löglegri netverslun með áfengi. Ummælin vöktu hörð viðbrögð og töldu margir það ósmekklegt af ráðherranum að nota heimsfaraldurinn til að koma gæluverkefni sínu á framfæri.
„Við gerum ekki reglugerðarbreytingar til að bjarga einstaka fjölskyldum sem fara í fjölmiðla.“
– Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sagði það ekki koma til greina að gera reglugerðarbreytingar til að hjálpa sex manna fjölskyldu frá Egyptalandi, sem dvalið hafði á Íslandi í meira en tvö ár, en til stóð að vísa fjölskyldunni úr landi.
„Maður heyrir viðtöl við sauðfjárbændur og á samtöl við þau, þar sem þeir segja að þetta er meira lífsstíll heldur en spurning um afkomu.“
– Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, lét falla ummæli á Alþingi um að margir bændur segðu starfið vera lífsstíl. Fullyrðing ráðherra vakti hörð viðbrögð, einkum frá landbúnaði landsins.
„Ég er ekki hvatamaður þess að hvorki námsmenn eða aðrir sem eru á atvinnuleysisskrá fái fjármagn úr ríkissjóði fyrir að gera ekki neitt.“
– Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, lét þessi óheppilegu ummæli falla um þá sem þiggja atvinnuleysisbætur frá ríkinu í Silfrinu á RÚV í maí. Ummælin vöktu hörð viðbrögð og þóttu þau sýna að félagsmálaráðherra hefði lítinn skilning á aðstæðum bæði atvinnulausra sem og námsmanna.
„Drullastu heim til Namibíu.”
– Atli Steinar Ingason
Leikmaður Skallagríms, Atli Steinar Ingason, lét ofangreind orð falla um leikmann Berserkja, Gunnar Jökul Johns, þegar liðin tvö mættust í 4. deild karla í júlí. Ummælin fólu í sér kynþáttafordóma og ákvað aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í kjölfarið að dæma Atla í fimm leikja bann.
„Björn Ingi á Viljanum.“
– Björn Ingi Hrafnsson
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, vakti heldur betur athygli á árinu fyrir framgöngu sína á upplýsingafundum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, en hann varð fljótt þekktur fyrir að kynna sig með ofangreindum orðum áður en hann bar fram spurningar á fundum.
„Jæja þá erum við búin að koma á helv… Kópasker.“
– Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, leikkona í leikhópnum Lottu, náði að reita heilt bæjarfélag til reiði í sumar með ummælunum sem hún lét falla í gríni og bjóst engan veginn við þeim hörðu viðbrögðum sem brandarinn vakti. Bæði leikhópurinn Lotta sem og Þórdís sjálf gáfu út afsökunarbeiðni í kjölfarið, en allt kom fyrir ekki og gekk það svo langt að henni fóru að berast líflátshótanir og hótanir um kynferðisofbeldi.
„Við Willum þekkjum alveg hver stjórnar. Og það er ekki Katrín.“
– Ágúst Ólafur Ágústsson
Þingmaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, var sakaður um kvenfyrirlitningu eftir að hann lét þau ummæli falla í Sprengisandi á Bylgjunni að sitjandi ríkisstjórn væri ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. Að venju eru ríkisstjórnir kenndar við forsætisráðherra sem nú er Katrín Jakobsdóttir.
„Það er ástæða fyrir því að hér er lítið um smit. Fólk fer mjög varlega. Akureyringar fylgja reglum.“
– Ásthildur Sturludóttir
Bæjarstjóri Akureyrar, Ásthildur Sturludóttir, lét þessi óheppilegu ummæli falla eftir að það vakti athygli hversu fá voru að greinast me kórónuveiruna fyrir norðan. Fullyrðing Ásthildar vakti bæði undrun og reiði netverja sem töldu orðin bera vott um hroka og yfirlæti.
„Já, ég held að þetta sé afsakanlegt.“
– Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gerði ekki kröfu um að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segði af sér eftir að hann tók þátt í veislu í Ásmundarsal á Þorláksmessu þar sem lögreglan var kölluð til vegna brota á sóttvarnareglum. Hún sagði þetta afsakanlegt af hans hálfu. Ráðamenn fjölda annarra landa hafa sagt af sér vegna slíkra brota.
„Á einhver örlítill grenjandi minnihluti hafa neitunarvald um það að þjóðin megi stofna þennan þjóðgarð sinn á sínu eigin landi?“
– Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, er hlynntur því að stofna hálendisþjóðgarð á Íslandi og af því tilefni steig hann í pontu á Alþingi í desember til að mæla fyrir slíkum þjóðgarði. Sagði hann breiða samstöðu fyrir málinu á þingi sem og meðal þjóðarinnar og velti hann upp þeirri spurningu hvort þessi minnihluti ætti að hafa neitunarvald gagnvart þjóðinni í málinu.