fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Fréttir

„Hvaðan kemur þú lúðinn þinn? Smyrðu þig með smjörlíki, syngdu Stál og hnífur 100 sinnum og grjóthaltu kjafti“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 31. júlí 2020 16:38

Bubbi Morthens - Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ferðabransinn ræður, landamæri opin, við hin tökum höggið,“ skrifaði tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens á Twitter-síðu sína í gær. Hann hefur fengið nokkrar athugasemdir við þetta en hefur verið harðorður við þá sem andmæla.

„Útbreiðslan er íslensk. Heimskur Bubbi,“ skrifaði Elías nokkur við tíst Bubba og svaraði Bubbi honum um leið. „Hvaðan kemur þú lúðin þinn? Smyrðu þig með smjölíki, farðu í kalda sturtu, syngdu stál og hnífur 100 sinum og grjóthaltu kjafti,“ sagði Bubbi við Elías.

Tómas Þóroddsson, veitingamaður og veitingahúsaeigandi, svarar einnig Bubba. „Nei Bubbi, hún berst með farandverkamönnum því þú nenntir ekki að vinna lengur í fiski,“ sagði Tómas. Bubbi var einnig harðorður í svari sínu til Tómasar. „Vinur farðu úr bleyjunni syngdu Fatlafól 5 sinnum settu síðan jógúrt á brunasvæðið, þá ætti þér að líða betur og mundu ekki rífa kjaft fyrr en þú ert hættur að vera með bleyju,“ sagði Bubbi við Tómas.

Þessar athugasemdir Bubba vöktu mikla athygli á Twitter. „Bubbi elskar að gjörsamlega pakka fólki saman hérna,“ sagði Siffi nokkur um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“
Fréttir
Í gær

Nova flytur á Broadway

Nova flytur á Broadway
Fréttir
Í gær

Framkvæmdastjóri hjá DAS svarar Jóhanni – „Ef íbúðin er afþökkuð er hún boðin næsta umsækjanda“

Framkvæmdastjóri hjá DAS svarar Jóhanni – „Ef íbúðin er afþökkuð er hún boðin næsta umsækjanda“
Fréttir
Í gær

Segir þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar litlu skila með ærnum tilkostnaði – „Um 250 milljarða. Það eru eitt eða tvö þjóðarsjúkrahús“

Segir þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar litlu skila með ærnum tilkostnaði – „Um 250 milljarða. Það eru eitt eða tvö þjóðarsjúkrahús“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lést á Hrunavegi eftir að hafa ekið á röngum vegarhelmingi á afskráðum jeppa

Lést á Hrunavegi eftir að hafa ekið á röngum vegarhelmingi á afskráðum jeppa