Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands fjallar um flugfreyjur og þeirra erfiðu stöðu í færslu sem birtist á Facebook fyrir skömmu. Hann segir umræðuna sem myndast hefur í kringum samningaviðræður þeirra við Icelandair vera alvarlega atlögu að verkalýðsfélögum og minnist á ósmekkleg ummæli sem flugfreyjur hafa fengið.
„Nú er Flugfreyjufélagið er búið að skrifa (aftur) undir kjarasamning í mjög þröngri og erfiðri stöðu, sem fer nú í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með umræðunni undanfarið vegna baráttu þeirra við að verja kjör sín. Flugfreyjur og flugþjónar hafa verið kallaðar „æluþrífarar á háum hælum“, „ónauðsynlegar puntudúkkur“, „stífmálaðar frekjur“ svo nokkuð sé nefnt fyrir utan „hryðjuverkamenn“ „óvinir íslenskrar ferðaþjónustu“, „landráðamenn“ og svo náttúrulega það að þau sýni – „skýran og einbeittan brotavilja að knésetja Icelandair og knýja það í gjaldþrot“. Fólk hefur lýst yfir sérstakri ánægju með að þeim hafi verið öllum sagt upp og auðvitað geti hver sem er sitt þessum „ómerkilegu störfum“ og fagnað því að gerð sé ein alvarlegasta atlaga sem lengi hefur sést að verkalýðsfélögum og hlutverki þeirra.“
Að lokum segir Flosi þeim sem sem að hafa stundað skítkast í garð flugfreyja eiga að skammast sín, þar sem að þær geri allt í valdi sínu til að gera flugferðir eins þægilegar og mögulegt er.
„Án efa munu flugfreyjur og flugþjónar sinna sínum störfum af fagmennsku og alúð, eins og ég þekki t.d. af því að ferðast með (mörg) lítil börn. Það er trúlega til of mikils mælst að þau sem hafa talið sig umkomin að kasta ótrúlegum skít í flugfreyjur og þeirra störf, drullist til að skammast sín þegar starfsfólkið um borð gerir allt sem það getur til að gera næstu ferð þeirra eins örugga og þægilega og kostur er.“
https://www.facebook.com/flosi.eiriksson/posts/10157835127533191