fbpx
Sunnudagur 11.maí 2025
Fréttir

Björgólfur telur villandi mynd dregna upp af Samherja – Útiloka ekki „mistök“ í rekstri dótturfélaga

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 21. júlí 2020 17:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rétt í þessu birtist svar frá Samherja vegna umfjöllunar Finance Undervcoverd og OCCRP. Líkt og DV greindi frá í morgun fjölluðu fjölmiðlarnir ítarlega um starfsemi Samherja í Namibíu, þar sem að fyrirtækið hefur verið sakað um mútugreiðslur til embættismanna og skattsvik.

Sjá einnig: Segja Samherjaskjölin sýna fram á umfangsmikil skattsvik

Í svarinu frá Samherja, sem er stílað á Björgólfur Jóhannsson, núverandi forstjóra forstjóri fyrirtækisins, er fullyrt að umfjöllunin afhjúpi skilningsleysi miðlanna á alþjóðaviðskiptum.

Þá kemur fram að Samherji útiloki ekki að „mistök“ dótturfélaga hafi átt sér stað og því hafi fyrirtækið gripið til aðgerða og hætt starfsemi í Namibíu.

Í yfirlýsingunni er því haldið fram að myndin sem dregin hefur verið upp af Samherja sé villandi, auk þess sem finna megi rangfærslur í skrifum blaðamanna Finance Uncovered. Í því samhengi er minnst á fjögur atriði.

Yfirlýsinguna má lesa hér að neðan:

„Í gær birtist frétt unnin af Finance Uncovered um starfsemi félaga sem tengjast Samherja í Namibíu. Að miklu leyti felur hún sér endurvinnslu á áður birtu efni.

Samherji hefur átt í samskiptum við Finance Uncovered undanfarna þrjá mánuði. Blaðamenn Finance Uncovered hafa lagt áherslu á að þeir séu ekki að saka Samherja um neitt ólöglegt og það er mikilvægt að halda því til haga að í greininni sem birtist í gær eru ekki settar fram ásakanir á hendur Samherja um skattundanskot. Sum atriði er lúta að skattaskipulagi samstæðunnar eru sett í neikvætt samhengi.

Rétt er að undirstrika að við teljum að sú mynd sem dregin hefur verið upp af Finance Uncovered sé villandi og að vinnubrögðin við ritun greinarinnar séu aðfinnsluverð. Fjölmargar rangfærslur koma fram í greininni og þá er ýmislegt slitið úr samhengi og þarfnast skýringa.

Í fyrsta lagi hefur Samherji aldrei selt sardínur eða makríl til verslanakeðjanna Carrefour og Tesco. Þá hafa félög á vegum Samherja aldrei stundað veiðar á sardínum í Namibíu en slíkar veiðar voru stundaðar í Marokkó um skamma hríð.

Í öðru lagi voru sjávarafurðir aðeins seldar innan samanstæðunnar í gegnum Kýpur á árinu 2012, fyrsta árið í starfseminni í Namibíu, meðan félög tengd Samherja voru að byggja upp viðskiptasambönd og tengsl í landinu. Fullyrðingar um afslætti í greininni eru rangar. Meðalálagning vegna sölu í gegnum Kýpur var 3,9% á árinu 2012.

Í þriðja lagi ber að leiðrétta fullyrðingar um samning við Atlantex vegna leigu skips sem notað var í Namibíu. Það skip sem hér um ræðir var leigt af Atlantex yfir mjög stutt tímabil á grundvelli samkomulags þar sem öll þjónusta var innifalin í leigunni. Þar er um að ræða allan búnað, veiðarfæri, olíu, viðgerðarþjónustu fyrir skipið o.s.frv. Eins og fram kemur í greininni var leiguverðið lækkað eftir fjóra og hálfan mánuð og hreinn hagnaður Atlantex á leigutímanum vegna skipsins nam einungis 6% álagningu.

Í fjórða lagi voru heildarskattar sem félög tengd Samherja greiddu í Namibíu í gegnum árin, þar með talið tekjuskattur, tryggingagjald, útflutningsgjöld, innflutningsgjöld, og fjöldi annarra greiðslna til ríkissjóðs Namibíu, samtals yfir 400 milljónum namibískra dollara, jafnvirði 3,7 milljarða króna. Það er í sjálfu sér merkilegt í ljósi þess að þegar upp var staðið var taprekstur af starfseminni.

Lögmætar ráðstafanir gerðar tortryggilegar

Nálgun Finance Uncovered afhjúpar ákveðið skilningsleysi þeirra á alþjóðlegum viðskiptum. Virt er að vettugi sú staðreynd að alþjóðleg fyrirtæki nota sérstök dótturfélög og styðjast við ákveðna uppbyggingu til að lágmarka áhættu sína vegna mismundi lagareglna, skatta og annarra rekstrartengdra þátta. Þá eru fullkomlega lögmætar ráðstafanir, sem gerðar eru í viðskiptalegum tilgangi, allar skoðaðar í því ljósi að þær tengist vafasömu skipulagi vegna skatta.

Framangreint þýðir ekki að við útilokum að mistök hafi verið gerð í rekstri dótturfélaga Samherja í Namibíu. Í því sambandi er ástæða til að árétta að auk þeirrar ákvörðunar að leggja niður starfsemina í Namibíu, og verja miklum tíma og fjármunum í að rannsaka ásakanir sem tengjast henni, tilkynnti Samherji í janúar síðastliðnum áform um að innleiða sérstakt kerfi fyrir stjórnarhætti og regluvörslu fyrir samstæðuna alla. Markmiðið er að samstæðan verði leiðandi á sviði stjórnunar- og innra eftirlits í sjávarútveginum á heimsvísu. Umfjöllun Finance Uncovered raskar í engu þessum áformum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Metnaðarfullt loftslagsverkefni Climeworks sagt fjarri markmiðum – Föngun koltvísýrings standi ekki undir þeirra eigin losun

Metnaðarfullt loftslagsverkefni Climeworks sagt fjarri markmiðum – Föngun koltvísýrings standi ekki undir þeirra eigin losun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skella í lás á Laugavegi í dag en opna stærri og glæsilegri Penna á Selfossi á næstu vikum

Skella í lás á Laugavegi í dag en opna stærri og glæsilegri Penna á Selfossi á næstu vikum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miklar sviptingar í fjármálum flokkanna á milli ára – Hafa fengið 9 milljarða króna frá árinu 2007

Miklar sviptingar í fjármálum flokkanna á milli ára – Hafa fengið 9 milljarða króna frá árinu 2007
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brynjar Karl geldur varhug við þingsetu Hannesar – „Rifjum upp nú geðveikasta póst allra tíma“

Brynjar Karl geldur varhug við þingsetu Hannesar – „Rifjum upp nú geðveikasta póst allra tíma“