fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
Fréttir

Gleðifréttir af Bíó Paradís

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 2. júlí 2020 12:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samþykkt var á fundi borgarráðs í morgun að tryggja áframhaldandi rekstur Bíó Paradísar en menningarbíóinu var lokað í vor. Kvikmyndahúsið hefur kappkostað að sýna menningarlegar bíómyndir, myndir frá hinum ýmsu löndum og eldri kvikmyndir. Jafnframt hefur verið rekinn bar og kaffihús á staðnum.

Í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðs segir:

„Bíó Paradís við Hverfisgötu mun hefja starfsemi að nýju í haust, en kvikmyndahúsið hefur verið lokað um nokkurt skeið vegna Covid-19 og óvissu um leigu á húsnæði undir starfsemina. Nú hefur þeirri óvissu verið eytt með nýju samkomulagi við eigendur hússins og uppfærslum á samstarfssamningum við ríki og borg. Stefnt er að því að ná að opna bíóið á ný um miðjan september næstkomandi, en þá verða liðin tíu ár frá því að starfsemi hófst þar.

Vegna aðstæðna þurfti Bíó Paradís að segja upp öllu starfsfólki síðastliðið vor, en þá höfðu aðilar ekki náð saman um leigukjör og nauðsynlegar endurbætur og viðhald húsnæðisins til lengri tíma. Það hefur nú tekist, eftir að málsaðilar slógu af ítrustu kröfum sínum og mættust á miðri leið. Áframhaldandi starfsemi í kvikmyndamenningarhúsinu við Hverfisgötu hefur því verið tryggð.

„Íslensk kvikmyndamenning stendur í miklum blóma og það er hlutverk okkar að vökva vel jarðveginn sem hún sprettur úr. Í því samhengi gegnir Bíó Paradís mikilvægu hlutverki, í samstarfi við atvinnugreinina, Kvikmyndamiðstöð Íslands og Kvikmyndasafn Íslands. Við ráðgerum að kynna með haustinu heildstæða kvikmyndastefnu fyrir Ísland, þar sem m.a. er gert ráð fyrir rekstri öflugs kvikmyndamenningarhúss. Starfsemi Bíós Paradísar fellur vel að því markmiði og ég hlakka til að sjá dyr þess opnast á ný,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

„Þetta er sannkallað gleðiefni,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. „Við erum með þessu að tryggja að Bíó Paradís sinni áfram þeirri mikilvægu menningarstarfsemi sem hún hefur sinnt undanfarin áratug. Bíóið er sannkölluð vagga kvikmyndamenningar í Reykjavík og á landinu öllu. Þá er ótrúlega mikilvægt að Hverfisgatan verði áfram heimili kvikmyndanna og haldi áfram að sjá kvikmyndaþyrstum gestum fyrir fjölbreyttu framboði af allskonar bíómyndum frá öllum heimshornum.“

Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bíós Paradísar segist vera himinlifandi með niðurstöðuna: „Við viljum þakka öllu stuðningsfólki Bíós Paradísar fyrir stuðninginn, en þó sérstaklega mennta- og menningarmálamálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg og eigendum hússins, félaginu Karli Mikla ehf. Við getum ekki beðið eftir að fara að sinna kvikmyndamenningunni aftur og halda áfram að færa landsmönnum öllum fjölbreytta kvikmyndaupplifun í betri aðstöðu.““

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Vilhjálmur fengið nóg og vill verðlækkanir – „Þegar krónan veikist hækka verðin strax“

Vilhjálmur fengið nóg og vill verðlækkanir – „Þegar krónan veikist hækka verðin strax“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Flosi ómyrkur í máli um árin í ferðaþjónustunni – „Mér þótti yfirmenn mínir oft hegða sér undarlega“

Flosi ómyrkur í máli um árin í ferðaþjónustunni – „Mér þótti yfirmenn mínir oft hegða sér undarlega“
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem reyndi að ræna Önnu prinsessu segist saklaus – „Ég var hræddari en hún“

Maðurinn sem reyndi að ræna Önnu prinsessu segist saklaus – „Ég var hræddari en hún“
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið – Reynt að láta 19 ára pilt taka á sig alla sökina

Gufunesmálið – Reynt að láta 19 ára pilt taka á sig alla sökina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorvaldur segir líkur á öðru gosi: „Það væri þá í kringum jólin eða eitthvað svoleiðis“

Þorvaldur segir líkur á öðru gosi: „Það væri þá í kringum jólin eða eitthvað svoleiðis“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drengirnir með englaandlitin frömdu hræðilegt ódæði – Móðirin hylmdi yfir með þeim

Drengirnir með englaandlitin frömdu hræðilegt ódæði – Móðirin hylmdi yfir með þeim