fbpx
Föstudagur 27.mars 2026
Fréttir

Óvissuástandi lýst yfir á Norðurlandi vegna jarðskjálftahrinu

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 20. júní 2020 17:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum.

Jarðskjálftahrina um 20 km NA við Siglufjörð heldur áfram en kl.15:05 í dag mældist skjálfti upp á 5.3.  Umrætt svæði er þekkt jarðskjálftasvæði en núverandi hrina er þar sem Eyjafjarðaráll mætir Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu. Svipuð hrina var í gangi á svæðinu 2012 en þá mældist stærsti skjálftinn 5.6.

Fjöldi misgengja er á þessu svæði og ómögulegt er að segja hvaða áhrif stóri skjálftinn í nótt muni hafa á þau misgengi. Svæðið er hluti af Tjörnesbrotabeltinu; misgengissvæði milli rekbeltanna sem liggja um Ísland og norður eftir Kolbeinseyjarhrygg, og algengt er að þarna komi hrinur skjálfta.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

Viðbúið er að grjóthrun geti orðið við þessar aðstæður og fólk er beðið um að hafa vara á undir bröttum hlíðum.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hvetja fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að gera viðeigandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta. Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (www.almannavarnir.is) má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta, bæði á heimilum og vinnustöðum, sjá hér https://www.almannavarnir.is/natturuva/jardskjalftar/varnir-gegn-jardskjalfta/

Á vef Veðurstofunnar er hægt að senda inn tilkynningar hafi fólk fundið fyrir jarðskjálfta og sjá yfirlit yfir jarðskjálfta síðustu 48 klst. www.vedur.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Lindex opnar í stað Next í Kringlunni

Lindex opnar í stað Next í Kringlunni
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Lýsir slæmri meðferð á Sjúkrahúsinu á Akureyri – Öskraði af kvölum á meðan þrír menn héldu honum niðri

Lýsir slæmri meðferð á Sjúkrahúsinu á Akureyri – Öskraði af kvölum á meðan þrír menn héldu honum niðri
Fréttir
Í gær

Ólafur F. tekur skýra afstöðu fyrir borgarstjórnarkosningar – Segir einn flokk skera sig úr

Ólafur F. tekur skýra afstöðu fyrir borgarstjórnarkosningar – Segir einn flokk skera sig úr
Fréttir
Í gær

Daði fær „uppsagnarbréf“: „Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði“

Daði fær „uppsagnarbréf“: „Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði“
Fréttir
Í gær

Tók fyrir tilviljun viðtal við mann nokkrum mínútum áður en hann varð bráðkvaddur á skiptistöðinni í Hamraborg

Tók fyrir tilviljun viðtal við mann nokkrum mínútum áður en hann varð bráðkvaddur á skiptistöðinni í Hamraborg
Fréttir
Í gær

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum

Robert F. Kennedy yngri skar getnaðarlim af þvottabirni á meðan börnin hans biðu í bílnum