fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Fréttir

Handtekinn við komuna til landsins frá París

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 11. júní 2020 16:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Suðurnesjum hefur hefur handtekið karlmann og tvær konur vegna tilraunar til að smygla miklu magni af fíkniefnum til landsins. Fólkið er íslenskt. Sá sem staðinn var að smygltilrauninni er maður á fimmtugsaldri og reyndi hann að smygla tveimur kílóum af fíkniefnum frá París sem falin voru í hljómflutningstækjum.

Gerðar voru húsleitir hjá fólkinu og lagt hald á muni sem taldir eru tengjast skipulagningu hins meinta glæps.

Fréttatilkynning frá Lögreglustjóranum á Suðurlandi um málið er eftirfarandi:

„Rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum á máli karlmanns sem staðinn var að því að reyna að smygla til landsins umtalsverðu magni af fíkniefnum í mars síðastliðinn leiddi til þess að þrennt var handtekið, karlmaður og tvær konur, öll íslensk.

Gerðar voru húsleitir hjá þeim þremur og haldlagðir munir sem taldir eru tengjast skipulagningu og undirbúningi innflutningsins.  Einnig voru haldlögð fíkniefni en hin handteknu eru einnig grunuð framleiðslu fíkniefna þar á meðal ræktun kannabisefna sem og sölu og dreifingu.

Sá sem staðinn var að smygltilrauninni er á fimmtugsaldri og var hann  handtekinn við komuna til landsins frá París með tvö kíló af kókaíni falið hljómflutningstækjum og lítilsháttar af metamfetamíni.  Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði för hans í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Lögreglan á Suðurnesjum hefur frá þeim tíma unnið að rannsókn málsins.

Maðurinn,  sem er af erlendu bergi brotinn , og karlmaðurinn sem handtekinn var á seinni stigum málsins voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald  en konurnar tvær voru látnar lausar að loknum skýrslutökum.  Rannsókn málsins er á lokastigi og hefur þáttur burðadýsins í málinu verið sendur Héraðssaksóknara til málsmeðferðar.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri  upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Starfslokasamningar upp á 50 milljónir vegna tveggja stjórnenda

Starfslokasamningar upp á 50 milljónir vegna tveggja stjórnenda
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Segir kynjajafnrétti og aukna þátttöku karla í umönnun barna hafa breytt orðasambandinu „eiga von á barni“

Segir kynjajafnrétti og aukna þátttöku karla í umönnun barna hafa breytt orðasambandinu „eiga von á barni“
Fréttir
Í gær

Bónus og viðskiptavinir styrkja Krabbameinsfélagið um 5 milljónir króna

Bónus og viðskiptavinir styrkja Krabbameinsfélagið um 5 milljónir króna
Fréttir
Í gær

Betur fór en á horfðist hjá ungum börnum í Reynisfjöru

Betur fór en á horfðist hjá ungum börnum í Reynisfjöru
Fréttir
Í gær

Guðni svarar Halldóri: „Hneisa að nefna fyrirtæki starfandi á Íslandi enskum nöfnum“

Guðni svarar Halldóri: „Hneisa að nefna fyrirtæki starfandi á Íslandi enskum nöfnum“
Fréttir
Í gær

Helgi Magnús lætur allt flakka – „Fyrirgefðu frönskuna mína“

Helgi Magnús lætur allt flakka – „Fyrirgefðu frönskuna mína“