fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fréttir

Farþegar og áhöfn verða að bera andlitsgrímur

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 9. júní 2020 18:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Icelandair hefur ákveðið að allir áhafnarmeðlimir og farþegar, að undanskildum börnum undir 12 ára aldri, þurfi að bera andlitsgrímur um borð í farþegaþotum félagsins er Icelandair hefur áætlunarflug til lykiláfangastaða frá og með 15. júní næstkomandi.

Farþegar eru hvattir til að koma með eigin grímur en grímur verða einnig tiltækar um borð í vélunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair þar sem farið er yfir ýmsar öryggisráðstafanir sem verið er að móta og ganga frá fyrir 15. júní.

Lágmarksþjónusta verður um borð og allar veitingar forpakkaðar.

Tilkynningin er svohljóðandi:

„Icelandair gerir ráðstafanir fyrir farþega og áhafnir í flugi næstu vikur

Icelandair gerir ráð fyrir að hefja á ný daglegt áætlunarflug til lykiláfangastaða frá og með 15. júní nk. Undirbúningur er nú í fullum gangi innan félagsins, meðal annars á sviði sölu- og markaðsmála og við frekari útfærslu sóttvarna um borð. Heilsa og öryggi farþega og starfsfólks er forgangsmál og fylgir félagið áfram ráðleggingum sóttvarnarlæknis og leggur á sama tíma áherslu á að koma til móts við væntingar farþega alls staðar að úr heiminum.

Ákvörðun hefur verið tekin um að áhafnarmeðlimir og allir farþegar, að undanskildum börnum undir tólf ára aldri, þurfi að vera með andlitsgrímur um borð. Þetta er til þess að gæta fyllsta öryggis og koma í veg fyrir möguleg smit, til viðbótar við aðrar sóttvarnir, svo sem handþvott og notkun handspritts. Þjónusta verður áfram takmörkuð af öryggisástæðum og verður til að mynda engin matarþjónusta um borð fyrst um sinn en vatnsflöskur verða afhentar þegar gengið er um borð. Þjónustustig verður endurmetið þegar á líður. Þá verður Saga Shop lokuð að minnsta kosti fyrst um sinn. Félagið mun halda áfram að leggja áherslu á aukin þrif um borð í vélunum. Allir snertifletir eru þrifnir sérstaklega fyrir hvert flug og salerni sótthreinsuð á milli fluga.

Farþegar eru hvattir til að koma með sínar eigin grímur en grímur verða einnig tiltækar um borð í vélunum. Mælt er með því að fleiri en ein gríma verði höfð meðferðis fyrir ferðalagið. Andlitsgríman má vera hvort sem er heimagerð eða keypt, en hún verður að hylja nef og munn. Taka má grímur niður til að neyta matar og drykkja um borð í vélinni. Farþegar sem finna fyrir flensulíkum einkennum hvattir til að fresta ferðalagi sínu.

Ennfremur er vel fylgst með loftgæðum um borð á meðan flugi stendur. Í vélum Icelandair er notast við HEPA (e. High Efficiency Particulate Air) lofthreinsibúnað, sem er samskonar búnaður og notaður er á skurðstofum. Búnaðurinn tryggir að alger loftskipti eiga sér stað 20 til 30 sinnum á hverri klukkustund.

Saga Lounge setustofa Icelandair verður opin en þar hefur jafnframt verið gripið til viðeigandi ráðstafana en lágmarksþjónusta verður í boði og allar veitingar forpakkaðar.

Á heimasíðu Icelandair má finna nánari upplýsingar um nálgun Icelandair og leiðbeiningar fyrir farþega um það hvernig best er að haga málum á ferðalagi, allt frá því að farþegar innrita sig og á meðan flugi stendur.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“
Fréttir
Í gær

Fundu skaðleg efni í pólsku skyri sem auglýst er sem íslenskt – Sveppaeitur og klórat

Fundu skaðleg efni í pólsku skyri sem auglýst er sem íslenskt – Sveppaeitur og klórat
Fréttir
Í gær

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“
Fréttir
Í gær

Handtekinn eftir húsbrot og líkamsárás

Handtekinn eftir húsbrot og líkamsárás