fbpx
Föstudagur 21.nóvember 2025
Fréttir

Sex greindir með COVID-19 á Íslandi

Ritstjórn DV
Mánudaginn 2. mars 2020 18:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag greindust þrír einstaklingar á Íslandi með COVID-19 veirusýkinguna sem herjað hefur á heimsbyggðina á seinustu misserum. Einstaklingarnir sem greindust í dag komu til Íslands frá Verona seinasta laugardag. Áður höfðu þrír greinst með veiruna, þannig að heildarfjöldi staðfestra tilfella er nú sex. Fréttablaðið greinir frá þessu.

Einstaklingarnir eru á sextugsaldri, tvær konur og einn karl. Þau eru öll búsett á höfuðborgarsvæðinu. Þau eru ekki mikið veik, en ber þó hefðbundin einkenni veirunnar, sem eru hiti, hósti og beinverkir.

Nítján sýni voru rannsökuð á Landspítalanum í dag, en áðurnefnd þrjú þeirra reyndust jákvæð. Um 260 manns eru nú í sóttkví, en sú tala gæti aukist á næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rúnar í Glerborg fékk risasekt

Rúnar í Glerborg fékk risasekt
Fréttir
Í gær

Segir hótelvæðinguna í Reykjavík hafa skaðleg áhrif – „Tekur ekkert tillit til þeirra sem þar eiga heimili“

Segir hótelvæðinguna í Reykjavík hafa skaðleg áhrif – „Tekur ekkert tillit til þeirra sem þar eiga heimili“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bók lýsir illum aðbúnaði barna og starfsfólks á íslensku munaðarleysingjaheimili í Kenýa – „Hrein og klár lygi“

Bók lýsir illum aðbúnaði barna og starfsfólks á íslensku munaðarleysingjaheimili í Kenýa – „Hrein og klár lygi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö útköll hjá lögreglu í dag út af búðahnupli

Sjö útköll hjá lögreglu í dag út af búðahnupli