Annar Íslendingur hefur greinst með kórónaveiruna sem veldur COVID-19 sjúkdóminum. Um er að ræða karlmann á sextugsaldri sem kom til landsins í gær með flugi frá Veróna á Ítalíu.
Áður hafði karlmaður á fimmtugsaldri greinst með sjúkdóminn eftir fjölskylduferð til Ítalíu, en hann var þó ekki að ferðast um á skilgreindu áhættusvæði.
Maðurinn sem greindist í dag sýnir lítil einkenni.
Samkvæmt tilkynningu er nú Ítalía öll skilgreind sem áhættusvæði. Þeir sem þaðan koma þurfa að fara í tveggaj vikna sóttkví og þeim tilmælum er beint til almennings að ferðast ekki til landsins nema nauðsynlegt þyki.
Sóttvarnarlæknir beinir því til allra farþega sem voru um borð í fluginu í gær að fara í 14 daga sóttkví sem og allra þeirra sem koma frá Ítalíu á næstunni.
Allir sem eru í sóttkví eiga að hafa samband við síma 1700 finni þau fyrir einkennum, jafnvel þó þau séu væg.
Almannavarnir og starfsfólk sóttvarnarlæknis mun í kvöld hefjast handa við að rekja allar mögulegar smitleiðir.