Lögreglumaður var í dag í Héraðsdómi Reykjaness fundinn sekur um ofbeldi við handtöku. Atvikið átti sér stað mánudaginn 18. mars 2019 fyrir utan Irishman Pub við Klapparstíg í Reykjavík.
Miðaldra maður lenti þar í orðaskaki við dyravörð er hann neitaði að fara með drykk sinn út í plastglasi og bar glerglas út úr húsi. Lögreglumaðurinn var þar staddur og blandaði sér í orðaskiptin. Sagði hann við manninn að dyravörðurinn hefði rétt fyrir sér. Að sögn lögreglumannins svaraði maðurinn þessu með svívirðingum og hótunum. Var hann því tekinn höndum og streittist hann mjög við handtökuna.
Í ákærunni var lögreglumaðurinn sakaður um að hafa ekki gætt lögmætra aðferða við handtökuna. Hann hafi slegið brotaþola aftan í höfuðið við að setja hann inn í lögreglubíl og þar inni hafi hann slegið hann tveimur höggum í andlit, þrýst hné sínu að hálsi og höfði og þvingað handjárnaða handleggi hans ítrekað í sársaukastöðu fyrir aftan bak þar sem brotaþoli lá á bílgólfinu á leiðinni á lögreglustöðuna með þeim afleiðingum að hann hlaut tognun og ofreynslu á hálshrygg.
Hinn ákærði, sem hefur verið lögreglumaður frá árinu 2016, neitaði ákæru um ofbeldi og sagðist hafa beitt lögmætum handtökuaðferðum. Meðal vitna sem kölluð voru fyrir réttinn var varðstjóri og valdbeitingarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann kvað ákærða vera fyrirmyndarlögreglumann og taldi þekkingu hans á valdbeitingaraðferðum mjög góða.
Dómari studdist við myndbandsupptökur sem meðal annars sýndu hinn ákærða slá brotaþola tvisvar laust í andlitið. Þó að höggin hafi ekki verið föst taldi dómari að ekki hefði verið nein ástæða til þeirra. Hann setti auk þess hné sitt á höfuð brotaþola sem dómari taldi fullkomlega óþarft við þessar aðstæður. Mátti heyra á upptökunni að það olli þrotaþola verulegum þjáningum.
Var lögreglumaðurinn því fundinn sekur um ofbeldi við handtöku. Tekið var tillit til þess að hann hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Var hann dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í 45 daga. Kröfum um mistabætur brotaþola var hafnað. Hins vegar þarf ákærði að greiða um 850 þúsund í málskostnað.