fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Fréttir

Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Kadeco

Ritstjórn DV
Föstudaginn 7. febrúar 2020 12:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Kadeco hefur ráðið Pálma Frey Randversson sem framkvæmdastjóra félagsins. Hann tekur til starfa 1. mars næstkomandi. Í tilkynningu frá Kadeco kemur fram að Pálmi hafi undanfarin ár starfað sem deildarstjóri og verkefnastjóri hjá Isavia við mótun og utanumhald þróunar- og uppbyggingaráætlana Keflavíkurflugvallar. Þá hefur hann jafnframt stýrt hönnunarsamkeppni og forvali vegna þróunaráætlunar, tekið þátt í vinnu við deiliskipulag og aðalskipulag flugvallarins.

Pálmi lauk M.Sc. prófi í Urban Design, borgarhönnun, frá Háskólanum í Álaborg árið 2009 og B.Sc. prófi í sama fagi frá sama háskóla 2003. Hann hefur setið fjölda ráðstefna og námskeiða varðandi þróun flugvallaborga.

Pálmi starfaði áður sem verkefna- og teymisstjóri og borgarhönnuður hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Þar stýrði hann fjölmörgum verkefnum tengdum umhverfis-, skipulags- og samgöngumálum.

„Ég er þakklátur fyrir það mikla traust sem stjórn Kadeco sýnir mér og hlakka til að takast á við þá áskorun að þróa það mikla land sem umlykur Keflavíkurflugvöll á grundvelli samkomulags ríkisins, Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar og Isavia. Flugvallarsvæðið hefur gríðarlega vaxtamöguleika enda um framtíðarsvæði landsins að ræða,“ segir Pálmi Freyr í tilkynningunni.

Ný stjórn Kadeco var kosin á hluthafafundi 13. janúar síðastliðinn. Stjórnarmenn eru nú fimm talsins eftir að undirritað var samkomulag milli ríkisins, Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar og Isavia um þróun og landnýtingu á því landi sem umlykur Keflavíkuflugvöll. Stjórn Kadceo er þannig skipuð: Ísak Ernir Kristinsson formaður, Steinunn Sigvaldadóttir, Ólafur Þór Ólafsson, Reynir Sævarsson og Elín Árnadóttir.

,,Með ráðningu Pálma í starf framkvæmdastjóra fær Kadeco reynslumikinn aðila á sviði þróunar- og skipulagsmála. Við treystu Pálma fullkomlega til þess að takast á við þau krefjandi en jafnframt áhugaverðu verkefni sem framundan eru og leiða félagið inn í nýja og spennandi tíma.”

Alls bárust 67 umsóknir um starfið og fékk stjórn Kadeco Capacent til þess að annast ráðningaferlið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Laporte að snúa aftur?
Fréttir
Í gær

Ebba Margrét opnar sig um veikindi – „Nú er komið að kaflaskilum, èg er hætt í feluleik“

Ebba Margrét opnar sig um veikindi – „Nú er komið að kaflaskilum, èg er hætt í feluleik“
Fréttir
Í gær

Reyndur flugstjóri segir að þetta smáatriði gefi til kynna hvað fór úrskeiðis

Reyndur flugstjóri segir að þetta smáatriði gefi til kynna hvað fór úrskeiðis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Geir Waage ekki sáttur: „Þá er verið að kenna villu­trú og það hef­ur mjög slæm­ar og al­var­leg­ar afleiðing­ar“

Geir Waage ekki sáttur: „Þá er verið að kenna villu­trú og það hef­ur mjög slæm­ar og al­var­leg­ar afleiðing­ar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullnægingarfrömuður dæmdur fyrir vinnumansal – Fyrirtækið sagt líkjast sértrúarsöfnuði

Fullnægingarfrömuður dæmdur fyrir vinnumansal – Fyrirtækið sagt líkjast sértrúarsöfnuði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten