fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Freyr gáttaður yfir símtali sem Snærós eiginkona hans fékk í nótt – „Mér þykir þetta til fullkominnar skammar“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 3. febrúar 2020 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Freyr Rögnvaldsson, blaðamaður á Stundinni, segist ekki að eiga orð yfir vinnubrögðum fréttamanns Sýnar, Eiðs Þórs Árnasonar. Hann kvartar undan honum í Facebook-hópnum Fjölmiðlanördar fyrir hönd eiginkonu sinnar, Snærósar Sindradóttur, fjölmiðlakonu og verkefnastjóra á RÚV.

Að sögn Freys hringdi Eiður á ókristilegum tíma vegna fréttar sem hann var með í vinnslu.

„Er sólarhringsopnun verslana farin að smitast yfir á fjölmiðla? Er eðlilegt að blaðamenn hringi í viðmælendur um miðjar nætur til að fá komment á mál, mál sem eru sannarlega ekki þannig að líf liggi við? Mér var kennd sú þumalputtaregla að hringja ekki í fólk, hvað þá ókunnugt, eftir tíu á kvöldin nema eitthvað alveg afskaplega mikilvægt lægi við. Þetta virðist annað hvort ekki vera þekkt sannindi eða þá að þessi kurteisi er á undanhaldi,“ segir Freyr.

Hann segir að málið hafi ekki verið þess eðlis að ekki hafi mátt bíða til morguns. „Í gærkvöldi hringdi hingað heim fjölmiðlamaður Sýnar, Eiður Þór Árnason, rètt fyrir tíu og bað um komment vegna fréttar sem hann var að vinna. Á heimilinu þótti þetta frekar undarlegt, símtalið seint tekið og um mál sem annar fjölmiðill hafði skýrt frá níu dögum fyrr. Konan mín spjallaði engu að síður við fjölmiðlamanninn en tók fram að hún vildi að hringt yrði í sig og borið undir hana hvað haft yrði eftir henni,“ segir Freyr.

Hann bendir á að umrædd frétt hafi ekki verið birt í nótt heldur í morgun og því vel hægt að bíða. „Fjölmiðlamanninum fannst sér sæmandi að hringja það símtal klukkan 00:36 í nótt. Fréttin var ekki birt þá þegar heldur í morgun, það lá sem sagt ekki svo á að mannslíf væru í húfi,“ segir Freyr og bætir við:

„Ég hef verið blaðamaður í 14 ár, bæði dagblöðum og vefmiðlum. Ég er eiginlega alveg gáttaður á þessum vinnubrögðum og veit að ég sjálfur myndi aldrei viðhafa neitt viðlíka. Ég get heldur ekki ímyndað mér að nokkur kollegi sem ég hef unnið með myndi láta sér til hugar koma svona vinnubrögð. Það er ekki eins og það hafi verið yfirstandandi hamfarir sem verið var að bregðast við. Mér þykir þetta til fullkominnar skammar.“

Þess má geta að fréttin sem Eiður var að vinna að fjallar um að fræðsluþættir RÚV núll um að fjármál fyrir ungt fólk hafi verið að hluta til fjármagnaðir af Samtökum fjármálafyrirtækja og Landssamtökum lífeyrissjóða. Sem verkefnastjóri ungmennaþjónustu RÚV, Rúv núll, ber hún ábyrgð á því.  Frétt Eiðs má lesa hér.

Þórir Guðmundsson, fréttastjóri Sýnar, svarar Freyr í athugasemd og segir: „Var ekki nóg að fá afsökunarbeiðni tvisvar?“

Uppfært kl: 15.
Freyr hefur eytt færslunni og segir í samtali við DV að hann hafi fengið afsökunarbeiðni. Málinu sé lokið og allir sáttir. 
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Umhverfisnefnd Garðabæjar leitar eftir ábendingum frá íbúum

Umhverfisnefnd Garðabæjar leitar eftir ábendingum frá íbúum
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Guðrún Karls svarar fyrir sig: Þjóðkirkjan ekki að breytast í múslímska kirkju – „Þá væri mér að mæta“

Guðrún Karls svarar fyrir sig: Þjóðkirkjan ekki að breytast í múslímska kirkju – „Þá væri mér að mæta“
Fréttir
Í gær

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025
Fréttir
Í gær

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“

Sigrún fékk rukkun frá Bílastæðasjóði og kannaðist ekki við sektina – „Ég hef létt óþol fyrir svona þvælu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags

Helgi Magnús afþakkaði boð um flutning – Á rétt á fullum launum í 9 ár án vinnuframlags