fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Jón Davíð lagður í einelti af fylgjendum Trumps – Brennimerktur barnaníðingur

Ritstjórn DV
Laugardaginn 1. febrúar 2020 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Davíð Sawyer er Íslendingur af bandarískum uppruna sem búsettur er í bænum Eugene í Oregon-fylki. Auk þess að vera tölvuforritari er Jón mikill aðgerðarsinni í sínum heimabæ og leggur mikið upp úr því að skipta sér af svonefndum nýnasistum og Trump-stuðningsmönnum á mótmælum sem eru til stuðnings Bandaríkjaforseta og nýnasisma. Á dögunum leiddi samkoma til þess að Jón fann mynd af sjálfum sér í opnum Facebook-hópi þar sem skipuleggjendur uppþotsins gerðu tilraun til þess að sverta mannorð hans og sögðu hann vera hættulegan barnaníðing.

Í samtali við DV segist Jón vera orðinn langþreyttur á þessari fjölgun nýnasista í Oregon, sem hófst um það leyti sem Trump var kjörinn, og segir svona viðburði oft samanstanda af sama fólkinu. Þetta fólk er þarna samankomið til að dreifa hatursorðræðu og ofbeldishótunum.

„Meirihluti þeirra sem mæta á þessar Trump-samkomur hefur einnig verið duglegur að mæta á nýnasistafundi. Þessi uppgangur ofbeldisfólks í Oregon er yfirleitt kenndur við hópa sem sameinast undir merkjum Trump.“

Ýjað að öryggi barna

Að sögn Jóns hefur maður að nafni Paul Luhrs, einn af skipuleggjendum nýnasistasamkomunnar, sent honum hótanir í gegnum spjallforritið Messenger og hótað öllu illu. Í kjölfar þess fóru aðrir skipuleggjendur að birta myndir af honum í hópum á samfélagsmiðlum sem er sérstaklega ætlað að opinbera nöfn og andlit dæmds kynferðisbrotafólks. Slíkum færslum var deilt víða en eftir tilkynningar einstaklingsins sem efnið snerti voru þær fjarlægðar. Jóni blöskraði heldur betur þegar hann sá nafn sitt þarna opinberað með yfirskriftinni: „Þessi maður er grunaður um að misnota ótalmörg börn undir tólf ára aldri. Tryggið öryggi barna ykkar.“

Í kjölfar þessarar birtingar ákvað Jón að segja frá þessu einelti á eigin samfélagsmiðlum sem áminningu um það hversu langt hrottarnir hafa seilst til að reyna að koma í veg fyrir frekari afskipti á samkomunum.

„Ég á erfitt með að trúa öðru en að fleiri hafa lent í einhverju sambærilegu,“ segir Jón. „Þegar maður skoðar hvernig aðferðir Trump notar til að ljúga upp á mótherja sína og óvini er augljóst að um svipað mynstur er að ræða hjá hans fylgjendum.“

Kippir sér ekki upp við lygar

Jón á engan sakaferil að baki og líkir tilraunum Pauls til að sverta mannorð hans við misheppnaðan listgjörning. Jón kippir sér þó ekki upp við þær lygar sem meðlimir hópsins hafa verið að dreifa. Þvert á móti sér hann þetta sem skýrt merki um upphlaup af hálfu skipuleggjenda. Jón segir að það að Paul og hans teymi hafi birt myndir á þessum Facebook-síðum, með fullyrðingum sem halda ekki vatni lagalega séð, þýði að hann sé álitinn ógn við svona samkomur. Jón segist ekki ætla að gefast upp, sama hvað um hann sé sagt, og vonar að fleira fólk í Oregon safnist saman til að smána þetta fólk fyrir fjandskap sinn og fordóma.

„Stuðningsmenn Trump mega ekki halda að þeir geti unnið. Nú er ég helmingi líklegri til að mæta á fleiri svona samkomur til að skapa usla gegn svona hatri. Stundum þýðir ekkert annað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Rúmri einni milljón fátækari eftir að hafa slegið 74 ára mann með flötum lófa

Rúmri einni milljón fátækari eftir að hafa slegið 74 ára mann með flötum lófa
Fréttir
Í gær

ÍA og Terra sameina krafta til að bæta úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum

ÍA og Terra sameina krafta til að bæta úrgangsflokkun á íþróttaviðburðum
Fréttir
Í gær

Íbúar hvattir til að eyða WhatsApp úr símtækjum sínum

Íbúar hvattir til að eyða WhatsApp úr símtækjum sínum
Fréttir
Í gær

Sigrún Ósk komin með nýtt starf – „Spennt fyrir að leggja mín lóð á vogarskálarnar“

Sigrún Ósk komin með nýtt starf – „Spennt fyrir að leggja mín lóð á vogarskálarnar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“