fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Dagur og Þórdís Lóa svara ekki Eflingu – VG hafði ekki tíma: „Virða láglaunafólk hjá borginni ekki svars“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 31. janúar 2020 15:11

Dagur B. Eggertsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Efling greinir frá því að eini borgarfulltrúi meirihlutans í Reykjavík sem hafi þegið boð um samtal með trúnaðarmönnum Eflingar hafi verið Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata.

„Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi vinstri grænna, sendi Eflingu skilaboð um að hún sæi sér ekki fært á mæta á umræddum tíma. Hins vegar væru hún og Elín Oddný Sigurðardóttir, varafulltrúi Vinstri grænna, tilbúnar til að finna annan tíma til að kynna sér sjónarmið Eflingar. Hvorki Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, né Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, hafa svarað erindi Eflingar,“ segir á vef verkalýðsfélagsins.

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir á Facebook-síðu sinni að umræddi oddvitar virði ekki láglaunafólk svars. „Oddvitar Viðreisnar og Samfylkingarinnar virða láglunafólk hjá borginni ekki svars þegar það býður þeim til fundar. Oddviti VG vill hittast seinna. Eingöngu oddviti Pírata þiggur boð um að koma og hitta Eflingarfélaga,“ segir Viðar.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bauð fulltrúunum til fundar á fimmtudag. „Markmið fundarins var að kynna fyrir oddvitunum tillögur Eflingar til leiðréttingar á kjörum félagsmanna ásamt því að eiga við þá samtal. Í erindinu var sérstaklega óskað eftir því að svarað yrði eigi síðar en um hádegi á föstudag. Aðeins höfðu tveir af fjórum borgarfulltrúanna svarað þegar fresturinn rann út. Hvorki hafði borist svar frá Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra né, Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur,“ segir á vef Eflingar.

„Því miður er þetta ekki í fyrsta skipti sem æðstu stjórnendur Reykjavíkurborgar virða ekki starfsmenn sína viðlits í yfirstandandi kjaraviðræðum sem hlýtur enn og aftur að teljast gríðarleg vonbrigði fyrir þennan lægst launaða hóp borgarstarfsmanna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Húsfélag við Hallgerðargötu í hart eftir að borgin opnaði óvænt íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í húsinu – Ungbarnaleikskóli á sama stað

Húsfélag við Hallgerðargötu í hart eftir að borgin opnaði óvænt íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í húsinu – Ungbarnaleikskóli á sama stað
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda
Fréttir
Í gær

Þannig fékk Guðmundur í Brim viðurnefnið

Þannig fékk Guðmundur í Brim viðurnefnið
Fréttir
Í gær

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“