fbpx
Laugardagur 22.nóvember 2025
Fréttir

Kemur ekki til greina að loka landinu vegna kórónaveirunnar

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 30. janúar 2020 13:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki kemur til greina að loka landinu vegna kórónaveirunnar. Slíkar ráðstafanir þyrftu að standa mánuðum saman og myndu valda víðtækum og alvarlegum afleiðingum fyrir íslenskt samfélag.

Þetta kom fram á fundi sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra í gær. Fjallað er um þetta í stöðuskýrslu almannavarnardeildar ríkislögreglustjórans vegna kórónaveirunnar sem send var fjölmiðlum á öðrum tímanum í dag. Var ráðherra sammála mati sóttvarnalæknis að þær ráðstafanir að loka landinu kæmu ekki til greina.

Búið er að staðfesta smit hjá 7.824 einstaklingum og um 170 einstaklingar hafa látist. Enginn einstaklingur hefur enn sem komið er greinst á Íslandi en sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að veiran muni berast hingað til lands. Því sé mikilvægt að grípa til ráðstafana til að hefta útbreiðslu hennar sem mest hér á landi. Engar aðgerðir munu hins vegar tryggja að veiran berist ekki hingað til lands.

Í skýrslunni kemur fram að á fundi sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjórans í morgun hafi verið rætt um viðbragð ef grunur um kórónaveiru kemur upp hér á landi eða einstaklingur greinist með veiruna.  Áfram er unnið að upplýsingamiðlun og uppfærslu leiðbeininga til heilbrigðisstarfsfólks, almennings og ferðaþjónustunnar. Upplýsingar eru þýddar og vistaðar á vef embættis landlæknis á þessari slóð hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ólafur og Anna skella í lás: „Þegar ríkið setti þennan skatt á þá hrundu bókanir“

Ólafur og Anna skella í lás: „Þegar ríkið setti þennan skatt á þá hrundu bókanir“
Fréttir
Í gær

Landsréttur þyngdi dóm yfir Mohamed sem flutti mikið magn af kókaíni til landsins á frumlegan hátt

Landsréttur þyngdi dóm yfir Mohamed sem flutti mikið magn af kókaíni til landsins á frumlegan hátt
Fréttir
Í gær

Hafnfirskir húseigendur verulega ósáttir – Segja lóð nágranna sinna hafa verið of háa í 30 ár

Hafnfirskir húseigendur verulega ósáttir – Segja lóð nágranna sinna hafa verið of háa í 30 ár
Fréttir
Í gær

Meintur ofbeldismaður þarf áfram að sæta nálgunarbanni gegn fyrrum eiginkonu og dætrum þeirra

Meintur ofbeldismaður þarf áfram að sæta nálgunarbanni gegn fyrrum eiginkonu og dætrum þeirra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rúnar í Glerborg fékk risasekt

Rúnar í Glerborg fékk risasekt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir hótelvæðinguna í Reykjavík hafa skaðleg áhrif – „Tekur ekkert tillit til þeirra sem þar eiga heimili“

Segir hótelvæðinguna í Reykjavík hafa skaðleg áhrif – „Tekur ekkert tillit til þeirra sem þar eiga heimili“