fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Sigríður segir grunnskólanemandann Jón vera kominn með nóg af lífinu – „Ég veit fullvel að ég hendi hér út sprengjum“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 27. janúar 2020 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„FOKK Jú ALLIR,“ sagði 14 ára nemandi Sigríðar Karlsdóttur, lífsleiknikennara og heilsuráðgjafa, eitt sinn. Nemandinn var kominn með nóg af skólanum, kennurunum, samnemendum sínum og sjálfum sér. „Ég skil hann mjög vel,“ segir Sigríður í pistli sem birtist á Vísi.

Sigríður segir frá því hvers vegna hún skilur þennan nemenda svona vel. Hún gerir það með því að taka dæmi af Jóni, grunnskólanema í íslensku grunnskólakerfi.

„Jón er frekar virkur en skemmtilegur drengur. Hann hlær svo krúttlega og elskar að leika í playmo um sex ára aldurinn. Hann getur sagt öllum frá ævintýrunum sem hann býr til í huganum og hann getur slegist við ósýnilega riddara sem búa bakvið gardínurnar. Hann var síðan settur í skóla. “

„Þar þarf hann að sitja í marga klukkutíma á dag og hlusta á fróðleik sem hefur verið kenndur síðan mamma hans var í grunnskóla. Allt samkvæmt Aðalnámskrá sjáið til,“ segir Sigríður og bætir við að Jón megi ekki lengur gera það sem hann var vanur að gera áður. „Hann má ekki lengur segja frá ævintýrunum sínum og leyfa líkamanum að ráða ferðinni og teygja úr sér eða hoppa nokkrum sinnum til að hleypa allir þessari orku út“.

„Kominn með nóg af lífinu“

Sigríður segir Jón ekki vilja fylgja Aðalnámskránni. „Það sem hann þráir hins vegar er að skynja veröldina, sjá fuglana án þess að þurfa þylja upp hugtökin,“ segir hún og bætir við að smám saman fái hann daglega þau skilaboð að hann sé ekki nóg. „Hann geti ekki setið kyrr, hann geti ekki gert þetta sem hann er beðinn um. Hann sé bara ómögulegur.“

Hún segir að þá fari Jóni að líða illa. „Tilfinningin: “ég er ekki nóg” bankar upp á. Þessi tilfinning gerir það að verkum að hann fer að forðast skólann. Hann nennir ekki að láta segja sér enn eina ferðina að hann sé lúser. Hann fer að sýna óviðeigandi hegðun. Hann gerir allt til að þurfa ekki að láta segja sér að hann er ekki nóg. “

Samkvæmt Sigríði þá byrjar ballið þegar Jón fer að trúa því að hann sé ekki nóg. „Eftir 10 ár í grunnskóla – eða afplánun eins og hann myndi orða það – útskrifast hann  og segir bara fokkjúall – kominn með nóg af lífinu.“

„Ég veit fullvel að ég hendi hér út sprengjum“

„Nú hljómar eins og ég sé að gagnrýna kennara eða skólana sjálfa. En það er ekki minn ásetningur,“ segir Sigríður en hún er að gagnrýna kerfið frekar en þá sem vinna innan þess. „Flestir kennarar og stjórnendur sem ég þekki eru frábært fólk og eru að gera sitt allra, allra besta. Þeir vinna bara eftir menningu og kerfi sem hefur skapast í gegnum árin. “

Hún veltir því fyrir sér hvers vegna það sé ennþá verið að kenna það sama eftir alla þessa áratugi. „Við vitum betur í dag. Við höfum þróast svo hratt og tímarnir eru allt aðrir en fyrir 40 árum. Hvers vegna erum við enn að nota kennsluaðferðir sem virkuðu þá? Auðvitað eru margir skólar með mjög þróaðar aðferðir og eru að finna einhver punkta, en oftar en ekki stoppar kerfið og fjármagn þá af til að fara alla leið.“

„Ég veit fullvel að ég hendi hér út sprengjum með þessari umræðu. En ég ætla samt að halda áfram,“ segir Sigríður og bendir á að sífellt sé verið að þróa eitthvað nýtt innan kerfisins en þrátt fyrir það er góðum árangri ekki náð.

„Það þarf ekki að breyta neinu innan kerfisins. Kerfið sjálft er vandamálið. Ég veit um tugi kennara sem sitja útbrenndir heima hjá sér og skilja ekki neitt í neinu. Þeir voru bara að slökkva elda alla daga, synda marvaða og reyna lifa af í biluðu kerfi. Þetta er eins og að gera alltaf við bilaða bíldruslu. Þegar eitt er komið í lag, þá bilar annað. Förum að hugsa öðruvísi. Förum að þora að breyta. Leyfum Jóni og félögum að útskrifast án þess að þurfa að segja fokkjúall! Fáum nemendur út í samfélagið með vitneskju um það að þeir eru með styrklega og eru fjandinn hafi það nóg!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Í gær

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag
Fréttir
Í gær

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda
Fréttir
Í gær

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu